Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Atli Ísleifsson skrifar 10. september 2025 07:25 Hiti á landinu verður á bilinu sjö til fjórtán stig. Vísir/Vilhelm Skil nálgast nú landið úr suðaustri og fara þau vestur yfir landið í dag. Þeim fylgir austan- og norðaustanátt, víða fimm til þrettán metrar á sekúndu með rigningu, en hægari vindur og úrkomulítið vestantil á landinu fram eftir degi.
Á vef Veðurstofunnar segir að síðdegis, þegar skilin gangi inn yfir vesturhluta landsins, dragi jafnframt úr vætu á Norður- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig. „Austlæg átt á morgun, 5-15 m/s og dálítil væta með köflum, hvassast allra syðst. Seinnipartinn snýst í hægari norðaustanátt og það bætir í úrkomu um landið norðaustanvert. Milt í veðri. Á föstudag snýst svo í norðlæga átt og það kólnar með súld eða rigningu um landið norðanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-15 m/s og dálítil væta með köflum, hvassast syðst. Fer að rigna austanlands síðdegis og á Norðurlandi um kvöldið. Hiti 8 til 16 stig, mildast suðvestantil. Á föstudag: Norðaustan 8-15 og rigning eða súld með köflum, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti 7 til 16 stig, mildast á Suðurlandi. Á laugardag: Norðaustlæg eða breytileg átt 5-15, hvassast á Vestfjörðum. Rigning með köflum, en úrkomulítið á Vesturlandi eftir hádegi. Hiti 7 til 15 stig, svalast norðvestantil. Á sunnudag: Austan- og norðaustanátt og dálítil væta, en lengst af þurrt og bjart á Norður- og Norðvesturlandi. Hiti 8 til 15 stig. Á mánudag: Norðaustan- og norðanátt og kólnar með dálítilli rigningu, en þurrt og milt á Suður- og Vesturlandi. Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt og stöku skúrir. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Klappar fyrir ferðalöngunum í óveðrinu Innlent Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Erlent „Ég veit ekkert hvað er í gangi“ Innlent Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Erlent „Ég er sátt“ Innlent Breytt hlutverk hjá Flokki fólksins: „Það eru tímamót hjá ríkisstjórninni okkar“ Innlent Segir Bandaríkin þurfa að eignast Grænland, sáttmálar séu ekki nóg Erlent Jón Rúnar stefnir Hafnarfjarðarbæ Innlent Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Innlent Samningur í höfn á síðustu stundu Innlent Fleiri fréttir Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Rólegt veður en kalt næstu daga Kólnar verulega á fyrstu dögum ársins Gular viðvaranir taka gildi Hvessir þegar líður á daginn Spáin fyrir gamlárskvöld að teiknast upp Frystir norðaustantil í kvöld Væta vestantil eftir hádegi Kuldaskil á leið yfir landið Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Jólin verða rauð eftir allt saman Gengur í langvinnt hvassviðri seinni partinn Hiti geti mest náð átján stigum Vara við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum Líklegt að hitamet verði slegið um jólin Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Ákveðin suðaustanátt, milt og skúrir síðdegis Hiti að sjö stigum og mildast syðst Fer að lægja norðvestantil um hádegi Sjá meira