Hægviðri og víða bjart Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2025 07:09 Hiti verður á bilinu fimm til tólf stig, mildast syðst. Vísir/Anton Brink Veðurstofan gerir ráð fyrir hægviðri í dag og víða björtu veðri, en stöku skúrir sunnan- og vestanlands í fyrstu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það gangi í norðvestan átta til fimmtán metra á sekúndu í kvöld fyrir austan með dálítilli vætu. Hiti verður á bilinu fimm til tólf stig, mildast syðst. Lægir smá saman á morgun. Snýst í sunnan 3-10 og þykknar upp vestantil annað kvöld, en léttir til fyrir austan. „Á Bretlandseyjum og í Noregi hafa appelsínugular og rauðar viðvaranir verið gefnar út vegna lægðarinnar, sem þar er kölluð Amy. Lægðin heldur sig nokkuð fjarri frá Íslandi og mun því ekki hafa mikil áhrif hér á landi. Þó er útlit fyrir norðvestan hvassviðri austast á landinu og þar geta verið snarpar vindhviður snemma á laugardag. Varasamt ferðaveður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og fólki á þessum slóðum er bent á að tryggja lausamuni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðvestan 3-8 m/s og lengst af bjart sunnan- og vestanlands, en 10-18 fyrir austan og lítilsháttar væta. Dregur úr vindi síðdegis og léttir til eystra. Hiti 2 til 9 stig að deginum, mildast syðst. Á sunnudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla austantil. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Vestlæg átt, 5-15, hvassast á annesjum norðantil. Rigning eða slydda nyrst, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast SA-lands. Á þriðjudag: Norðvestlæg átt og slydda eða snjókoma fyrir norðan, en lægir síðdegis og léttir víða til. Áfram svalt. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir vestlæga átt með vætu á köflum, en þurrt að kalla austantil. Hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira