Sumardag árið 1919 rétti ungverskur læknir húshjálp sinni blómvönd og bað hana um að koma honum fyrir í vasa. Næsta dag voru blómin dauð. Þegar læknirinn komst að því að stúlkan hefði verið á blæðingum skrifaði hann vísindagrein um tortímingarmátt tíða kvenna. Í kjölfarið náði fótfestu sú trú að konur á túr gæfu frá sér eitrið „menotoxin“ sem olli því að gróður visnaði, brauð reis ekki við bakstur og sulta hljóp ekki. En þótt tíðir kvenna hafi í aldanna rás þótt brestur virðast þær nú skyndilega helsti styrkleiki þeirra. Atvinnuöryggi leikkvenna Íslenskar leikkonur þurfa ekki að óttast að gervigreindarleikkonan Tilly Norwood, sem steig nýverið fram á sjónarsviðið, ógni atvinnuöryggi þeirra. Kvað leikstjórinn Baldvin Z gervigreindarleikkonur ekki spennandi kost, því fegurðin í góðum leik fælist í hinu óvænta – eins og leikkonum á túr og í vondu skapi. Leikkonur tóku ummælin óstinnt upp. Kannski voru þær einfaldlega á túr. Baldvin Z taldi þó öruggast að bakka með það sem hann kallaði „rasshausa-ummæli“ sín, sem hefðu verið „gamaldags“ og „hallærisleg“. Full ástæða er til að láta Baldvini Z heyra það. Fimm ástæður eru hins vegar til að fagna slíkum rasshausa-ummælum: 1. Rasshausa-ummæli bjóða upp á hlátur í svartnættinu Eins og í tilfelli Baldvins Z rennur góður ásetningur stundum út í sandinn. Það var tilfinningaþrungin stund þegar ísraelskum gíslum í haldi Hamas var sleppt í vikunni. Á síðasta ári hugðist Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, krefjast frelsunar gíslanna í ræðu með orðunum „return of the hostages“. Ekki tókst betur til en svo að hann kallaði eftir „return of the sausages“ – frelsun pylsnanna. Árið 2017, mitt í „Black Lives Matter“ mótmælabylgju, lék Kendall Jenner í gosdrykkjaauglýsingu þar sem hún stillti til friðar á mótmælum með því að rétta lögreglumanni dós af Pepsi. Auglýsingin þótti gera lítið úr mótmælum svartra í Bandaríkjunum og var tekin úr loftinu á innan við sólarhring. „Dömur mínar og herrar, má ég kynna Pútín forseta,“ sagði Joe Biden þar sem hann bauð Volodymyr Zelensky velkominn á sviðið á NATO fundi til stuðnings Úkraínu á síðasta ári. Ekki tókst betur til þegar Karl Gústaf Svíakonungur kynnti til leiks nýtt barnabarn sitt fyrr á árinu og fór vitlaust með nafn prinsessunnar. Svíakonungur kvaðst miður sín yfir mistökunum. Rasshausa-ummæli kalla þó sjaldan á svo sterkar tilfinningar. 2. Gott stundargaman Í bókinni Ekki misskilja mig vitlaust eftir Guðjón Inga Eiríksson má finna lífleg mismæli ýmissa Íslendinga. „Margt smátt gerir eitt lítið,“ fullyrti veitingamaður á Flateyri. Fréttamaður sagði að „heilbrigðisráðherra hafi tekið ákvörðunina að höfðu samræði við lækna“. Annar minnti á „ellefu fréttirnar sem hefjast stundvíslega klukkan 22:30“ Frægur athafnamaður sagði að „ekki séu allir peningar til fjár“. Kona af Ströndum óskaði þess að vera „dauð fluga á vegg“. Stjórnmálakona leiðrétti „rangsannindi“ og sakaði ráðherra um að „stinga höfðinu í steininn“. Rasshausa-ummæli lifa sjaldan lengur en það tekur hláturinn að fjara út. En einstaka sinnum festa þau sig í sessi. 3. Gagnleg við nýyrðasmíð Orðið rasshaus tók að skjóta rótum í íslenskri tungu á öðrum áratug 21. aldarinnar. Hugtakið „rasshausa-ummæli“ er hins vegar nýtt af nálinni. Þótt Baldvin Z fagni því kannski ekki að vera smiður þess má hann þakka fyrir að vera ekki kenndur við það: Þriðjudaginn 23. apríl árið 1991 vaknaði breski viðskiptajöfurinn Gerald Ratner glaður í bragði. Ratners beið sú vegsemd að halda ræðu á samkomu atvinnurekenda í Royal Albert Hall í London, en hann rak vinsæla keðju skartgripaverslana, sem seldi skart á hagstæðu verði. Gerald Ratner fæddist árið 1949 í London. Hann lifði hátt, keypti sér þyrlu og Porche, ferðaðist um heiminn á fyrsta farrými, gisti í fínustu hótelsvítunum og þrátt fyrir að vera giftur var við margan kvenmanninn kenndur.Getty Ræða Ratners gekk vel. EN ÞÚ TRÚRI EKKI HVAÐ GERÐIST NÆST. Sakleysisleg spurning áhorfanda í salnum átti eftir að umturna lífi hans. „Hvernig getið þið selt vörurnar ykkar svona ódýrt?“ Ratner hikaði ekki: „Því þær eru andskotans drasl,“ svaraði hann. „Við seljum eyrnalokka sem kosta minna en samloka með rækjusalati – en þeir endast líka skemur.“ Viðskiptavinum skartgripaverslana Ratners var ekki skemmt. Salan hrundi og fyrirtækið varð næstum gjaldþrota. Svo epískt var fall Ratners að í enskri tungu er nú talað um „að gera Ratner“ þegar viðhöfð eru rasshausa-ummæli. En rasshausa-ummæli eru – eins og afstæðiskenning Einsteins – háð tíma og rúmi. 4) Rasshausa-ummæli minna okkur á að einu sinni var ástandið verra ... Árið 1632 var ítalski stjörnufræðingurinn Galileo Galilei dæmdur í stofufangelsi fyrir að viðra það sem þá þóttu óttaleg rasshausa-ummæli: Galileo hélt því fram að jörðin snerist kringum sólina en ekki öfugt. Að sama skapi getur viðtekinn sannleikur gærdagsins verið rasshausa-ummæli dagsins í dag. 5) ... og að heimur batnandi fer „Húsfreyjustörf eru aldrei leiðinleg – Nema húsfreyjan sé það sjálf,“ sagði í fyrirsögn í dagblaðinu Vísi árið 1955. Árið 1955 voru húsfreyjustörf aldrei leiðinleg.Tímarit.is Ummæli formanns Sambands danskra húsmæðrafélaga þóttu sjálfsögð árið 1955. Gæfi einhver í skyn árið 2025 að þætti konu leiðinlegt að skúra væri skýringin sú að hún væri sjálf svo leiðinleg yrði viðkomandi tafarlaust afskrifaður sem rasshaus. Niðurstaðan er því þessi: Fyrir slysni fanga rasshausa-ummæli Baldvins Z kjarna þess sem hann vildi sagt hafa: Það eru blæbrigðin sem gefa lífinu lit, mótlætið sem getur af sér nýjar hugmyndir, mislyndið sem leysir úr læðingi sköpunargáfuna, glappaskot sem gera okkur kleift að hlæja á erfiðum stundum. Fegurðin felst í hinu óvænta – eins og leikstjórum sem viðhafa rasshausa-ummæli. Án blæbrigða væri tilveran fullkomin flatneskja. Samhengið með Sif Mest lesið Slappur smassborgari Gagnrýni „Bíður bara inni í skáp eftir brúðkaupinu“ Tíska og hönnun Leikkonur á túr: Fimm verstu rasshausa-ummælin Lífið Fékk Laufeyju í afmælið: „Maggi bróðir hefur alltaf verið betri en aðrir að gefa gjafir“ Lífið Hélt auganu en missti af frumsýningu eftir að hafa fengið golfkúlu í andlitið Lífið Heitasta hámhorfið í haust Lífið Betra sem hárbindi en tagl í Bríeti Tíska og hönnun „Lífið gefur okkur mislangan tíma og ég vil nýta minn til hins ýtrasta“ Lífið Leyndarmál Móu að hinni fullkomnu kvöldförðun Lífið Vakti yfir sofandi sonunum vopnuð hnífi Lífið