Frost komst í fjórtán stig í nótt Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2025 07:05 Hiti verður yfirleitt núll til sex stig þegar kemur fram á daginn, en frystir aftur í kvöld. Vísir/Vilhelm Það var hægur vindur og kalt á landinu í nótt og komst frost í þrettán til fjórtán stig á nokkrum stöðvum norðaustanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að smálægð muni ganga suðaustur yfir landið í dag og verður áttin því breytileg, gola eða kaldi og lítilsháttar rigning eða snjókoma í flestum landshlutum. Seinnipartinn snýst vindur til norðlægrar áttar með dálitlum éljum, en léttir til á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti yfirleitt 0 til 6 stig þegar kemur fram á daginn, en frystir aftur í kvöld. Hæglætisveður á morgun og stöku él austast, annars þurrt. Hiti um eða undir frostmarki, en mildara syðst. Síðdegis nálgast næsta lægð úr suðvestri. Annað kvöld er búist við ákveðinni austan- og suðaustanátt með snjókomu víða, en rigningu eða slyddu suðvestanlands. Lægðin fer síðan austur fyrir sunnan land og á mánudag snýst í norðaustanátt með éljum. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Breytileg átt 3-8 m/s og bjart með köflum, en stöku él austast. Hiti um eða undir frostmarki. Gengur í suðaustan 5-13 suðvestantil um kvöldið með snjókomu eða rigningu. Á sunnudag: Austan og norðaustan 3-10, en heldur hvassara syðst. Víða él og vægt frost, en slydda eða rigning sunnanlands framan af degi. Á mánudag: Austlæg átt og líkur á éljum, en úrkomulítið norðan heiða. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en frostlaust syðst á landinu. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustanátt og dálítil él norðan- og austanlands, annars skýjað með köflum og þurrt. Áfram kalt í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira