Sækja á fjórða milljarð króna Árni Sæberg skrifar 4. nóvember 2025 11:00 Úr vinnsluhúsi félagsins í Þorlákshöfn. First water Landeldisfélagið First Water í Þorlákshöfn hefur lokið hlutafjáraukningu fyrir um 3,5 milljarða króna. Meirihluti hlutafjáraukningarinnar er frá nýjum hluthöfum en einnig var góð þátttaka frá núverandi hluthöfum. Þrír lífeyrissjóðir koma inn sem nýir hluthafar og eru nú átta af tíu stærstu lífeyrissjóðum landsins í hluthafahópi First Water. Fjárfestingarfélagið Stoðir eru eftir sem áður stærsti hluthafi félagsins.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að First Water hafi frá stofnun sótt samtals um 27 milljarð króna í hlutafé og um 12 milljarða króna í lánsfé, en félagið tilkynnti um lánsfjármögnun frá Arion Banka og Landsbanka í lok síðasta árs. Félagið hafi þannig tryggt sér fjármögnun sem nemur 39 milljörðum króna. First Water sé að ljúka uppbyggingu á fyrsta áfanga af sex í Þorlákshöfn. Félagið hafi þegar byggt og tekið í notkun átta yfirbyggða landeldistanka sem eru 25 metrar í þvermál og hafið vinnslu og útflutning á laxi sem vegur fimm kíló. Undirbúningur sé hafinn fyrir næstu framkvæmd en um sé að ræða uppbyggingu á 28 metra tönkum, sem muni tvöfalda árlega framleiðslugetu félagsins úr 5.000 tonnum í 10.000 tonn. Með þeim fyrstu til að selja fimm kílóa fisk úr landeldi Í lok september hafi félagið tilkynnt að það hefði hafið vinnslu og útflutning á fimm kílóa slægðum landeldislaxi, sem sé afar eftirsótt vara á heimsmarkaði. Framleiðslan hafi öll verið seld til viðskiptavina í Bandaríkjunum og í Evrópu. First Water sé meðal fyrstu landeldisfyrirtækja á heimsvísu til að slátra og selja á fimm kílóa slægðan lax. Tilkoma 25 metra eldistankanna geri félaginu kleift að framleiða þessa eftirsóttu vöru og veita viðskiptavinum jafnt og stöðugt framboð af laxi í hæsta gæðaflokki allan ársins hring, en félagið reki jafnframt fiskvinnsluhús í Þorlákshöfn með sérhæfðum vinnuslulínum til þess að vinna og pakka laxi fyrir útflutning. Tíu þúsund tonnum meiri framleiðslugeta Upphaflegar áætlanir First Water hafi gert ráð fyrir að afköst landeldisstöðvarinnar yrðu samtals um 50.000 tonn ári þegar stöðin væri komin í fulla vinnslu. Reynsla síðustu mánaða bendi til þess að framleiðslugeta félagsins verði meiri og stefnt sé að því að framleiða um 60.000 tonn árlega. Þannig verði framleiðslugeta First Water um 20.000 tonn þegar fyrstu tveir áfangarnir verða komnir í fulla notkun, en gert sé ráð fyrir að öðrum áfanga ljúki árið 2028. „Þessi hlutafjáraukning gerir okkur kleift að halda áfram uppbyggingunni við Laxabraut í Þorlákshöfn. Reynsla okkar af landeldi á laxi í lokuðum 25 metra eldistönkum er afar góð og hafa viðtökur kaupenda við 5 kg laxinum verið framar vonum.Þessi hágæða afurð er afar mikilvæg í okkar rekstri enda mjög eftirsótt á heimsvísu. Við höfum þegar selt samtals um 2.200 tonn af hágæða landeldislaxi. Verkefnin fram undan hjá First Water er áframhaldandi uppbygging á landeldisstöð okkar í Þorlákshöfn, fjármögnun félagsins og öflug sölu- og markaðsstarfsemi. Um leið og ég býð nýja hluthafa velkomna í hópinn þá vil ég þakka það traust sem fjárfestar hafa sýnt félaginu með áframhaldandi stuðning við uppbyggingaráform þess,“ er haft eftir Eggerti Þór Kristóferssyni, forstjóra First Water.
Landeldi Fiskeldi Ölfus Tengdar fréttir First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Landeldisfyrirtækið First Water og Ísfélag hf. hafa samið um að fyrrnefnda fyrirtækið leigi húsnæði og aðstöðu hjá því síðarnefnda í Þorlákshöfn. Engin vinnsla hefur verið í húsnæðinu frá því í september. 23. nóvember 2024 14:07 Stjórnin stækkuð og Orri verður stjórnarformaður First Water Orri Hauksson, fyrrverandi forstjóri Símans um árabil, hefur tekið við sem formaður stjórnar First Water en félagið stendur að stórfelldri uppbyggingu á landeldisstöð við Þorlákshöfn og kláraði fyrr á árinu nærri sex milljarða fjármögnun frá núverandi hluthöfum. Á nýlegum hluthafafundi First Water var ákveðið að stækka stjórnina með innkomu fjögurra nýrra stjórnarmanna en jafnframt hefur forstjóri Stoða, stærsti hluthafi landeldisfyrirtækisins, farið úr stjórninni. 24. maí 2025 12:59 First Water klárar um sex milljarða hlutafjáraukningu frá innlendum fjárfestum Eftir að hafa lokið núna hlutafjáraukningu upp á nærri sex milljarða króna, leidd af núverandi hluthöfum, hefur landeldisfyrirtækið First Water sótt sér samtals um 24 milljarða í hlutafé frá innlendum fjárfestum á allra síðustu árum. Til stóð að ganga frá umtalsverðri fjármögnun frá erlendum sjóðum á fyrri hluta þessa árs, með aðstoð fjárfestingabankans Lazard, en ljóst er að einhver bið verður á aðkomu þeirra að félaginu. 25. mars 2025 10:54 LIVE fjárfesti fyrir 1,5 milljarð í First Water og fer með sex prósenta hlut Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti fyrir 1,5 milljarða króna með beinum hætti í landeldinu First Water þegar fiskeldið kláraði stórt hlutfjárútboð í fyrra og var þá verðmetið á liðlega 25 milljarða. Stjórnarformaður sjóðsins, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, kallar eftir því að settur verði aukinn kraft í greiningu vænlegra innviðafjárfestinga svo hægt sé að virkja sem fyrst tækifærin sem bíða á því sviði. 22. mars 2024 15:55 Mest lesið Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Viðskipti erlent Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Viðskipti innlent Eldmóðurinn slokknar ekki þótt kertin séu orðin sjötíu Framúrskarandi fyrirtæki Sækja á fjórða milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhaldi aftur hafnað í hundrað milljóna bankamáli Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Sjá meira
First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Landeldisfyrirtækið First Water og Ísfélag hf. hafa samið um að fyrrnefnda fyrirtækið leigi húsnæði og aðstöðu hjá því síðarnefnda í Þorlákshöfn. Engin vinnsla hefur verið í húsnæðinu frá því í september. 23. nóvember 2024 14:07
Stjórnin stækkuð og Orri verður stjórnarformaður First Water Orri Hauksson, fyrrverandi forstjóri Símans um árabil, hefur tekið við sem formaður stjórnar First Water en félagið stendur að stórfelldri uppbyggingu á landeldisstöð við Þorlákshöfn og kláraði fyrr á árinu nærri sex milljarða fjármögnun frá núverandi hluthöfum. Á nýlegum hluthafafundi First Water var ákveðið að stækka stjórnina með innkomu fjögurra nýrra stjórnarmanna en jafnframt hefur forstjóri Stoða, stærsti hluthafi landeldisfyrirtækisins, farið úr stjórninni. 24. maí 2025 12:59
First Water klárar um sex milljarða hlutafjáraukningu frá innlendum fjárfestum Eftir að hafa lokið núna hlutafjáraukningu upp á nærri sex milljarða króna, leidd af núverandi hluthöfum, hefur landeldisfyrirtækið First Water sótt sér samtals um 24 milljarða í hlutafé frá innlendum fjárfestum á allra síðustu árum. Til stóð að ganga frá umtalsverðri fjármögnun frá erlendum sjóðum á fyrri hluta þessa árs, með aðstoð fjárfestingabankans Lazard, en ljóst er að einhver bið verður á aðkomu þeirra að félaginu. 25. mars 2025 10:54
LIVE fjárfesti fyrir 1,5 milljarð í First Water og fer með sex prósenta hlut Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti fyrir 1,5 milljarða króna með beinum hætti í landeldinu First Water þegar fiskeldið kláraði stórt hlutfjárútboð í fyrra og var þá verðmetið á liðlega 25 milljarða. Stjórnarformaður sjóðsins, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, kallar eftir því að settur verði aukinn kraft í greiningu vænlegra innviðafjárfestinga svo hægt sé að virkja sem fyrst tækifærin sem bíða á því sviði. 22. mars 2024 15:55