Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. nóvember 2025 14:15 Jimmy Cliff er einn stærsti reggítónlistarmaður sögunnar og samdi hann ófáa slagara. Jamaíska reggígoðsögnin Jimmy Cliff, sem átti stóran þátt í að breiða út reggí til heimsbyggðarinnar, er látinn 81 árs að aldri.
Ekkja Cliff, Latifa Chambers, greindi frá andláti hans í færslu á Instagram og sagði hann hafa látist vegna flogakasts í kjölfar lungnabólgu. Cliff lék aðalhlutverkið í jamaísku glæpamyndinni The Harder They Fall (1972) sem er enn í dag ein stærsta og vinsælasta kvikmynd landsins. Tónlist myndarinnar var gefin út í plötu og átti stóran þátt í að kynna heimsbyggðina fyrir reggítónlist. Meðal þekktustu slagara Cliff eru lögin „You Can Get It If You Really Want,“ I Can See Clearly Now“ og „Wonderful World, Beautiful People“. Cliff er einn af fáum tónlistarmönnum sem hafa hlotið heiðursorðu Jamaíka. Kom reggíi á kortið Cliff fæddist í Saint James-sýslu í Jamaíku árið 1944 og hóf tónlistarferil sinn á sjöunda áratugnum eftir að hafa flutt til höfuðborgarinnar, Kingston. Lög Cliff urðu vinsæl í heimalandinu og var hann valinn sem fulltrúi Jamaíka á heimssýninguna í New York árið 1964. Jimmy Cliff gaf út meira en þrjátíu plötur á ferli sínum. Hann skrifaði í kjölfarið undir hjá Island Records og flutti til Lundúna. Útgáfufyrirtækið reyndi fyrst að markaðssetja tónlist Cliff fyrir rokk-hlustendur sem gekk illa. Hann sló svo í gegn með smáskífunni “Wonderful World, Beautiful People“ árið 1969. Hann samdi síðan mótmælalagið „Vietnam“ og gerði ábreiðu af „Wild World“ eftir Cat Stevens áður en hann lék í jamaísku glæpamyndinni The Harder They Come (1972). Samnefnd plata sem innihélt kvikmyndatónlist myndarinnar kom heimsbyggðinni á reggíbragðið. Cliff var áfram afkastamikill á áttunda og níunda áratugnum, gaf út mikið af tónlist og ferðaðist um heiminn á tónleikaferðalögum. Hann ferðaðist síðan til Afríku til að tengjast rótum sínum og tók þá upp Íslamstrú. Ný kynslóð uppgötvaði tónlist Cliffe árið 1994 þegar kvikmyndin Cool Runnings kom út því lag hans, „I Can See Clearly Now,“ var í myndinni og rauk aftur upp á vinsældarlista. Síðasta plata Cliff, Refugees, kom út árið 2022 en hann vann hana með Wyclef Jean. Allt í allt gaf hann út meira en þrjátíu plötur.
Andlát Tónlist Jamaíka Mest lesið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun „Enginn skömm af því að leita sér hjálpar“ Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr Lífið Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Lífið Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Lífið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Lífið Fleiri fréttir „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Sjá meira