Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í hálft ár Stefán Árni Pálsson skrifar 27. nóvember 2025 15:03 Daníel Bjarnason er tónskáld og tónlistarstjórnandi og vann að nýjustu plötu Rosalíu. Daníel Bjarnason, tónskáld og tónlistarstjórnandi, var í risastóru hlutverki við gerð nýjustu plötu poppstjörnunnar Rosalíu, Lux. Þátttaka Daníels á plötunni kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og mátti hann ekki ræða hana við neinn í hálft ár.
Spænska söngkonan Rosalía er fædd árið 1992 í Katalóníu og hefur á undanförnum árum skotist hratt upp á stjörnuhimininn. Hún gaf út sína fyrstu plötu 2017 og sló svo rækilega í gegn fyrir sína næstu plötu, El Mal Querer, sem kom út ári síðar. Þriðja platan, Motomami, skilaði henni engu minna en heimsfrægð, en fjórða og nýjasta platan hennar Lux, sem kom út í byrjun nóvember, hefur hins vegar sprengt alla skala, slíkar voru viðtökurnar. Rosalia hefur safnað að sér verðlaunum.Mynd/Getty Meistaraverk og plata áratugarins eru orð sem notuð hafa verið til að lýsa plötunni sem jafnvel er sögð marka tímamót í tónlistarsögunni. Fimm stjörnur í Rolling Stone og ný met á topplistum Spotify og Billbord eru bara nokkur dæmi um árangur plötunnar til þessa. Rosalía syngur á alls fjórtán tungumálum á plötunni, og þótt íslenska sé ekki þar á meðal, þá koma Íslendingar heldur betur við sögu eins og Elín Margrét Böðvarsdóttir komst að í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. En hvað er það við Rosalíu og plötuna Lux sem þykir svona stórbotið? „Þetta er náttúrulega mjög flókið listaverk og það er ekkert endilega einhver ein túlkun. Fyrstu viðbrögð eru bara þessi músík, því hún er svo svakaleg og hefur svo mikil tilfinningaleg áhrif á mann,“ segir Nína Hjálmars menningarrýnir. „Í grunninn myndi maður halda að hún væri poppstjarna frá Spáni, Barcelona, en hún er miklu meira en það,“ segir Álfgrímur Aðalsteinsson, listamaður og aðdáandi. Björk og Rosalia hafa aldrei unnið saman áður en Björk kemur við sögu á nýjustu plötunni. „Mér finnst hún ótrúlega trú sjálfri sér. Hún er berskjölduð og einlæg og mér finnst það einmitt kristallast í þessari nýju plötu. Hún nær auðveldlega til þín,“ segir Isabel Alejandra Diaz aðdáandi. Rosalía er risaaðdáandi Bjarkar sem kemur við sögu í laginu Berghein. En Björk er sannarlega ekki eini Íslendingurinn sem tekur þátt í þessu merkilega verki. Daníel Bjarnason tónskáld var í risastóru hlutverki við gerð plötunnar en hann hvorki meira né minna en stýrði sinfóníuhljómsveitinni sem þar gegnir algjöru lykilhlutverki. „Þetta kom frekar óvænt til. Það var hringt í mig fyrir sirka ári síðan, þá fékk ég símtal frá umboðsskrifstofu minni og ég var spurður hvort ég væri til í að koma eftir viku og stjórna upptöku á nýjustu plötu með Rosalíu. Ég bara sló til og sagði já,“ segir Daníel. Með mörg járn í eldinum „Svo fékk ég demoin af lögunum og fattaði þá að þetta væri kannski enn þá meira spennandi en ég hafði gert ráð fyrir og miklu meiri partur sem hljómsveitin væri af þessari plötu. Þannig byrjaði þetta og kom svolítið eins og þruma úr heiðskíru lofti.“ Að vanda er þessi færi og þaulreyndi listamaður með mörg járn í eldinum en hann vinnur sem stendur í nokkrum verkefnum. En honum þætti ekki leiðinlegt að gera eitthvað svipað aftur. Lítið hafði spurst út um hvað væri í vændum þar til Lux komst út svo Daníel þurfti að passa sig að kjafta ekki af sér. Hann skrifaði undir sérstakan samning þar sem kom fram að hann mætti ekki ræða plötuna við neinn í sex mánuði eða fram að útgáfu. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni en þar kemur fram að hver Íslendingurinn á fætur öðrum tekur þátt í þessu meistaraverki frá Rosalíu.
Tónlist Ísland í dag Mest lesið Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í heilt ár Lífið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Bíó og sjónvarp Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið Kjallarinn eins og nýr hjá Ásu og Árna Lífið „Ma & pa í apríl“ Lífið Inga Elín hannar fyrir Saga Class Lífið Fleiri fréttir Útgeislun og glæsileiki í húðvörupartýi Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í heilt ár Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Inga Elín hannar fyrir Saga Class Kjallarinn eins og nýr hjá Ásu og Árna „Ma & pa í apríl“ Bryndís Líf og Stefán eiga von á dreng Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? 50+: Það má segja Nei við barnapössun Gummi Ben gerir aldargamla fjölskylduuppskrift Inga Sæland fór á kostum í „Hvort myndir þú?“ Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lýsa endalokum vinsæls frasa: „Megi six-seven hvíla í friði“ Harbour og „Madeline“ sögð hafa endurnýjað kynnin Menningarmýs komu saman í jólafíling Retró-draumur í Hlíðunum Fjarlægði tónlistina þar til nýja platan hefur verið fjármögnuð „Ég heillast af hættunni“ „Mér finnst þessi vegferð okkar ótrúlega glæsileg“ Sögufrægt hús falt fyrir tvö hundruð milljónir Máttu ekkert gera og fóru þá að trufla Sunna Ben og Andri Freyr héldu „ponsulítið brúðkaup“ Helgi Ómars nú Heilsu-Helgi Þurfa að staðfesta á fimm ára fresti að dóttir þeirra sé enn með Downs Theodór Elmar og Pattra í sundur Kristján Guðmundsson látinn Simmi Vill í meðferð Sambærilegt því að spila með Real Madrid Sjá meira