Nágrannar kveðja endanlega í dag Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. desember 2025 12:07 Ryan Moloney, Alan Fletcher, Jackie Woodburne, Angela Bishop, Ian Smith og Stefan Dennis kvöddu skjáinn 2022 og gera það aftur núna í dag. Getty Síðasti þáttur sápuóperunnar Nágranna verður sýndur í dag í Ástralíu og á Bretlandseyjum. Þátturinn er með þeim langlífari í sögunni og hefur verið sýndur síðan 1985. Amazon kom til bjargar þegar þátturinn var tekinn af dagskrá 2022 en nú er komið að endanlegri kveðjustund.
Nágrannar þekkja það að binda endi á sögur karaktera sinna, láta þá snúa aftur og jafnvel ganga frá þeim í annað sinn. Serían hefur sjálf upplifað það, var fyrst tekin stuttlega af dagskrá eftir fjögurra mánaða göngu 1985 og síðan aftur 2022. En nú hefur leikmynd seríunnar, sem staðið hefur í fjörutíu ár, verið tekin í sundur og leikarar leitað á önnur mið: Ramsay-stræti hefur sungið sitt síðasta. „Maður finnur fyrir deja vu,“ sagði yfirframleiðandinn Jason Herbison í viðtali við BBC um tímamótin. Eftir að Channel 5 ákvað að hætta að sýna þættina endaði serían á stjörnum prýddum lokaþætti með Hollywood-stjörnunum Margot Robbie og Guy Pearce, sem slitu barnskónum í þáttunum, tónlistarkonunni Kylie Minogue og söngvaranum Jason Donovan. Mörg hundruð manns söfnuðust saman á Federation-torgi í Melbourne til að fylgjast með endinum á stóra skjánum og BBC var með lifandi vakt vegna tímamótanna. Skömmu eftir að sá lokaþáttur fór í loftið bárust hins vegar fregnir af því að þetta væru ekki endalokin, Amazon MGM Studios tók Nágrannana upp á sína arma. Sviptingarnar voru svo skjótar að Pearce grínaðist með að kveðjugjöfinni sem Robbie sendi á framleiðendurnar, kassa af kampavíni, yrði skilað. En endurkoman entist stutt. Fyrr á þessu ári tilkynnti Amazon að serían myndi enda í desember, fjörutíu árum og rúmlega níu þúsund þáttum síðar. Þátturinn verður ekki jafn stjörnum hlaðinn og síðast en mun vafalaust nísta enn dýpra. Þátturinn verður síðan sýndur hérlendis á Sýn þann 24. febrúar næstkomandi.
Bíó og sjónvarp Ástralía Tímamót Tengdar fréttir Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn Síðasta atriði áströlsku sjónvarpsþáttanna Nágrannar hefur verið tekið upp. Þættirnir hafa verið á sjónvarpsskjáum áhorfenda í tugi ára. 13. júlí 2025 13:54 Nágrannar snúa aftur á Stöð 2 árið 2023 Þau sögulegu tíðindi urðu í gær að Nágrannar kvöddu sjónvarpsáhorfendur Stöðvar 2. Ástralska sjónvarpsþáttaröðin hefur verið á dagskrá sjónvarps í 37 ár og stefndi í að þáttaröðin myndi kveðja fyrir fullt og allt. Ekki varð af því, sem betur fer fyrir dygga aðdáendur. 22. desember 2022 15:26 Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira
Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn Síðasta atriði áströlsku sjónvarpsþáttanna Nágrannar hefur verið tekið upp. Þættirnir hafa verið á sjónvarpsskjáum áhorfenda í tugi ára. 13. júlí 2025 13:54
Nágrannar snúa aftur á Stöð 2 árið 2023 Þau sögulegu tíðindi urðu í gær að Nágrannar kvöddu sjónvarpsáhorfendur Stöðvar 2. Ástralska sjónvarpsþáttaröðin hefur verið á dagskrá sjónvarps í 37 ár og stefndi í að þáttaröðin myndi kveðja fyrir fullt og allt. Ekki varð af því, sem betur fer fyrir dygga aðdáendur. 22. desember 2022 15:26