Hiti að sjö stigum og mildast syðst Atli Ísleifsson skrifar 19. desember 2025 07:15 Hiti verður víða núll til sjö stig, mildast syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðaustlægri eða breytilegri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu. Gert er ráð fyrir skúrum eða éljum en að það verði að mestu þurrt norðan jökla.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði víða núll til sjö stig, mildast syðst, en vægt frost í innsveitum um landið norðanvert. „Á laugardaginn styttir upp norðan jökla um eftirmiðdaginn, en útlit er fyrir samfelldri rigningu suðaustanlands inn í aðfaranótt sunnudags. Á vetrarsólstöðum á sunnudag verður víða bjart og rólegt veður, en þó dálitlar skúrir á Suðausturlandi. Dagana þar á eftir er útlit fyrir úrkomusamt veður með köflum vegna lægðaskila sem verða í kringum landið, og virðist veðrið ætla að ná hámarki á aðfangadag og jóladag. Þar sem skilin ganga yfir gæti vindur náð allt að 20 m/s, fyrst vestantil. Þá mun einnig kólna lítilega og því eru einhverjar líkur á hvítum jólum um landið norðvestan- og vestanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan 10-18 m/s og rigning með köflum, en talsverð úrkoma suðaustantil og úrkomuminna á Norðausturlandi. Dregur hægt úr rigningu síðdegis og lægir annað kvöld. Hiti 3 til 11 stig. Á sunnudag (vetrarsólstöður): Suðaustlæg átt 3-10 og bjart með köflum, en hvassara með Suðurströndinni. Heldur kólnandi. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 5-13 og dálítil væta suðaustantil, en víða bjart um norðan- og vestanvert landið. Þykknar upp um kvöldið með talsverðri úrkomu á Suðurlandi og Austurlandi. Vægt frost á norðanverðu landinu, en hiti allt að 5 stigum sunnan- og austanlands. Á þriðjudag (Þorláksmessa): Breytileg átt og dálítil rigning eða slydda, en lengst af þurrt um landið norðanvert. Hlýnandi veður, hiti 2 til 7 stig seinnipartinn. Á miðvikudag (aðfangadagur jóla): Útlit fyrir suðlæga átt, víða strekkingur eða allhvasst, með talsverðri úrkomu í flestum landshlutum, einkum sunnan jökla. Líklega rigning eða slydduél, en líkur á snjókomu um norðvestan- og vestanvert landið. Hiti 3 til 8 stig, en um frostmark norðvestantil. Á fimmtudag (jóladagur): Suðvestan 10-18, hvassast vestantil. Bætir í vind með kvöldinu. Snjókoma um landið vestanvert, en dregur úr úrkomu um austanvert landið síðdegis. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira