Atvinnulíf

Al­gengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það erfiða er ekkert endilega að strengja sér áramótaheit. Heldur að standa við þau. Flestir strengja sér sambærileg heit, mjög oft tengt heilsu og líkamsrækt.
Það erfiða er ekkert endilega að strengja sér áramótaheit. Heldur að standa við þau. Flestir strengja sér sambærileg heit, mjög oft tengt heilsu og líkamsrækt. Vísir/Getty

Áramótaheitin okkar virðast nokkuð fyrirséð. Og alþjóðleg. Í hinum vestræna heimi er alla vega nokkuð líklegt að við séum flest að strengja okkur sambærileg áramótaheit.

Vinsælustu tíu áramótaheitin hjá Bandaríkjamönnum fyrir árið 2026 eru til dæmis þessi:

  • Hreyfa okkur meira
  • Vera hamingjusamari
  • Spara pening
  • Létta okkur (þyngd)
  • Bæta andlega heilsu okkar
  • Að læra eitthvað nýtt
  • Verja meiri tíma með fjölskyldu (sama hlutfall og að læra eitthvað nýtt)
  • Að rækta trúnna (sama hlutfall og læra eitthvað nýtt eða verja tíma með fjölskyldu)
  • Að lesa meira (sama hlutfall og að rækta fjölskyldusamveru eða trúnna)
  • Ferðast

Bretar eru á svipuðu róli. Þar sundurliðast reyndar heilsumarkmiðin í efstu sætin en heilt yfir eru markmiðin í efstu sætunum tíu frekar svipuð.

  • Komast í form/hreyfa sig meira
  • Léttast (þyngdartap)
  • Borða hollari mat
  • Betri heilsa almennt
  • Spara pening, eyða minna
  • Að vera betri útgáfa af sjálfum mér
  • Rækta samband við vini og vandamenn
  • Að ná betri tökum á kauphegðun/fjármálum
  • Skipta um vinnu
  • Ferðast, fara í frí

Í ellefta sæti í Bretlandi er markmið um að drekka minna áfengi. Sem eflaust er mörgum ofarlega í huga, að minnsta kosti að morgni nýársdags.

Ekki er ólíklegt að áramótaheit okkar Íslendinga séu á svipuðu róli og hjá Kananum eða Bretanum. 

En hvernig getum við staðið við þessi heit? Því flestir gefast upp í febrúar mars….

Úff: Hvernig getum við staðið við áramótaheitin okkar árið 2026? Þannig að þessi heit séu ekki alltaf eitthvað sem endar eins og grín....Vísir/Getty

Við báðum gervigreindina ChatGpt að gefa okkur fimm góð ráð en þau eru þessi:

1. Jákvætt orðalag

Samkvæmt rannsóknum eykur það líkurnar á árangri ef við orðum markmiðin okkar á jákvæðan hátt. Dæmi: Ég ætla að hreya mig meira, frekar en: Ég ætla að hætta að sleppa ræktinni svona oft.

2. Einfalt, skýrt, mælanlegt

Þegar við strengjum okkur heit er erfitt ef það er of almennt. Dæmi: Ég ætla að borða grænmeti í hádeginu alla daga vikunnar í vinnunni eða ég ætla að fara í ræktina 3 x í viku, er skýrara orðalag en að strengja sér heit um að borða hollara og vera duglegri í ræktinni.

3. Fíllinn ekki gleyptur í janúar

Margir gefast upp því þeir ætla sér of mikið of hratt. Mælt er með því að fólk búi sér til lágmarks-dagskrá og byggi síðan ofan á hana, viku eftir viku til dæmis.

4. Kerfið sem virkar

Viljastyrkur er ekki það sama og að vinna að markmið með einhverju ákveðnu kerfi. Og þar er það víst þannig að það er betra fyrir okkur að velja okkur KERFI fyrirfram. Til dæmis að ákveða tíma, stað, hvernig, hvaða mælikvarða/árangursmælingar við ætlum að styðja okkur við og svo framvegis.

5. Þú ert enginn aumingi né lúser

Loks er það að ákveða með okkur sjálfum, hvernig við ætlum að mæta bakslögum. Því það munu koma bakslög. Segjum sem svo að ætlunin sé að léttast, eða vera duglegri að mæta í ræktina. Í stað þess að fara í hugarfarið uppgjöf þegar það koma dagar sem við náðum ekki að standa okkur, ákveðum við fyrirfram viðhorf eins og: Og ef ég spring einn dag, þá bara ókei….aðalmálið er að halda áfram daginn eftir og gefast ekki upp.


Tengdar fréttir

Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“

„Ég held að uppeldið hafi skipt þar miklu. Foreldrar mínir hafa alltaf sagt að ég gæti gert allt sem ég vil. Sem þó var ekkert alltaf auðvelt. Til dæmis ætlaði ég að verða læknir en ákvað að taka pásu í háskóla og stefna að því að verða atvinnumaður í CrossFit,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í CrossFit og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Dottir Skin.

Dæmi um persónuleg markmið í vinnunni 2021

Um áramótin setjum við okkur oft alls kyns markmið fyrir nýtt ár, ekki síst á sviði hreyfingu og hollustu. En það getur líka verið gott að setja sér persónuleg markmið fyrir vinnuna og hér eru dæmi um hvernig slík markmiðasetning gæti litið út.

„Ég held við séum öll föst í að vera við sjálf“

„Sagan af Öskubusku er kannski besta dæmið. Um konu sem er í mjög slæmri stöðu en með nýjum kjól þá getur hún blekkt og orðið „önnur“ og nær sér í prinsinn og kemst út úr ósanngjörnum aðstæðum og bætir líf sitt stórkostlega,“ segir Linda Björg Árnadóttir doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands þar sem hún er að rannsaka félagsfræði tísku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×