Viðskipti innlent

„Laxaveisla á Ís­landi“ og út­lit fyrir um­tals­verðan vöxt í fram­leiðslu

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Mynd úr safni af laxeldi í Patreksfirði þar sem Arctic Fish er meðal annars með starfsemi.
Mynd úr safni af laxeldi í Patreksfirði þar sem Arctic Fish er meðal annars með starfsemi. Vísir/Einar

„Laxaveisla á Íslandi“ segir í fyrirsögn norska viðskiptablaðsins Finansavisen í gær þar sem fjallað er um mikinn vöxt í laxeldisframleiðslu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish á Íslandi. Framleiðsla fyrirtækisins, sem er í meirihlutaeigu norska fyrirtækisins Mowi, stefni í að vaxa um 78% yfir tveggja ára tímabil.

Í umfjöllun blaðsins er bent á að Arctic Fish, sem rekur fiskeldi á nokkrum stöðum á Vestfjörðum, sé í 51% eigu norska fyrirtækisins Mowi og 34% í eigu Síldarvinnslunnar sem á næststærstan hlut í félaginu. Vísað er í uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2025 þar sem framleiðsla fyrirtækisins nam 4.229 tonnum sem sé aukning um 22% frá sama tímabili árið á undan þegar framleiðslan var 3.456 tonn.

Frá vinnslustöð Arctic Fish í Bolungarvík.Vísir/Anton Brink

Þá hafi laxaframleiðslan fyrir allt árið 2025 verið 14.791 tonn sem sé nýtt met og 39% meira en árið á undan. Samkvæmt tilkynningu Arctic Fish eru uppi jákvæðar horfur fyrir árið 2026 þar sem fyrirtækið gerir ráð fyrir umtalsverðum vexti. Áætlanir gera ráð fyrir framleiðslu á 17.500 tonnum af laxi árið 2026. Sé horft til fyrsta ársfjórðungs þessa árs er gert ráð fyrir framleiðslu upp á 5600 tonn sem er aukning um 78% sé framleiðslan borin saman við fyrsta ársfjórðung árið 2024.

Frammistaðan á fjórða ársfjórðungi 2025 hafi verið vel yfir væntingum og það sjái fram á áframhaldandi jákvæða þróun í byrjun 2026. Þá verði aukin áhersla áfram lögð á að draga úr kostnaði 2026.

Tekjur drógust hins vegar nokkuð saman á milli ára samkvæmt tilkynningu um ársfjórðungsuppgjörið, en ástæðan er rakin til lægra verðs á markaði á sláturtíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×