Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Aron Guðmundsson skrifar 16. febrúar 2026 19:21 Jürgen Klopp var dýrkaður og dáður í Liverpool og kvaddur með tárum. Getty/James Baylis Marc Kosicke, umboðsmaður þýska knattspyrnustjórans Jurgen Klopp, segir að bæði Manchester United og Chelsea hafi bæði spurst fyrir um áhuga Þjóðverjans að gerast knattspyrnustjóri sinna liða þrátt fyrir að hann hafi ekki sagst ætla taka við öðru liði á Englandi eftir að hafa farið frá Liverpool.
Þetta kemur fram í viðtali Kosicke við Transfermarkt en áhugi félaganna tveggja á Þjóðverjanum á að hafa verið til staðar áður en Klopp tók við núverandi starfi sínu hjá Red Bull samsteypunni þar sem hann er titlaður alþjóða yfirmaður fótboltamála. In an exclusive interview with Transfermarkt, Marc Kosicke - Jürgen Klopp's agent - has revealed that Manchester United and Chelsea approached the German after he left Liverpool 🤯 pic.twitter.com/GVJnOvrnyq— Transfermarkt.co.uk (@TMuk_news) February 16, 2026 Klopp lét af störfum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool eftir tímabilið 2023/24 en þá hafði hann verið knattspyrnustjóri liðsins í níu ár en undir hans stjórn varð Liverpool Englandsmeistari, enskur bikarmeistari og vann Meistaradeild Evrópu og er þá listi afrekanna ekki tæmdur. Við brotthvarf sitt hjá Liverpool sagði Klopp að hann myndi aldrei taka við stjórn annars liðs á Englandi en það mun, að sögn Kosicke, ekki hafa stöðvað önnur lið þar í landi í því að kanna áhugann hjá Þjóðverjanum. Þó má halda því til haga að bæði Chelsea og Manchester United neita því að hafa spurst fyrir um Klopp á sínum tíma í svari sínu við fyrirspurn The Athletic. „Áður en hann gekk til liðs við Red Bull hefði Klopp geta þjálfað landslið Bandaríkjanna eða Englands, jafnvel landslið Þýskalands ef Julian Nagelsmann hefði ekki verið ráðinn áður. meira a ðsegja Chelsea og Manchester United spurðust fyrir um hann,“ sagði Kosicke í samtali við Transfermarkt og útilokar ekki að Þjóðverjinn snúi aftur í þjálfun. „Á þessari stundu sé ég það ekki gerast vegna þess að hann er mjög ánægður í sínu starfi og í þessu umhverfi. En kannski á einhverjum tímapunkti mun hann þurfa að anda að sér loftinu í búningsklefanum aftur.“
Enski boltinn Liverpool FC Manchester United Chelsea FC Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira