Innherji

Jóhann hættir störfum hjá Al­vot­ech og fjár­festingarfélaginu Aztiq

Hörður Ægisson skrifar
Jóhann G. Jóhannsson hefur starfað hjá Aztiq frá stofnun 2009 en hann verður áfram meðal hluthafa eftir að hafa sagt núna skilið við félagið. 
Jóhann G. Jóhannsson hefur starfað hjá Aztiq frá stofnun 2009 en hann verður áfram meðal hluthafa eftir að hafa sagt núna skilið við félagið. 

Jóhann G. Jóhannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvotech og einn stofnenda fjárfestingafélagsins Aztiq, er hættur störfum hjá fyrirtækjunum en hann hefur verið meðal lykilstjórnenda hjá samstæðunni í nærri tvo áratugi.

Jóhann er í hópi meðeigenda Aztiq, sem var stofnað árið 2009 og er meðal annars stærsti einstaki hluthafi Alvotech, en fjárfestingafélaginu er stýrt af Róberti Wessman sem er jafnframt langsamlega stærsti eigandi þess. Á síðasta ári seldi Aztiq frá sér eignarhluti í tveimur lyfjafyrirtækjum, Adalvo og Alvogen US, og nýtti söluandvirðið til að gera upp skuldir fjárfestingarsamstæðunnar.

Í samtali við Innherja staðfestir Jóhann að hann sé búinn að láta af störfum sem stjórnandi hjá Aztiq og samhliða því sagt skilið við Alvotech. Jóhann hafði gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá Alvotech þar sem hann hefur farið fyrir fjármögnun og fyrirtækjakaupum hjá líftæknilyfjafélaginu (e. EVP Capital Markets & M&A) á undanförnum árum.

Jóhann segir breytingarnar koma til í kjölfar þess að tilkynnt var um það í ársbyrjun að Lisa Graver, fyrrverandi forstjóri Alvogen í Bandaríkjunum, myndi taka við af Róberti sem forstjóri Alvotech og hann verða þess í stað stjórnarformaður í fullu starfi.

„Ég er stoltur yfir því að hafa verið þátttakandi í uppbyggingu Alvotech en núna er rétti tíminn til að láta af störfum og snúa sér að öðrum verkefnum. Framtíðin er björt hjá Alvotech og félagið hafa alla burði til að verða eitt af leiðandi líftæknilyfjafyrirtækjum í heiminum.“

Verður áfram hluthafi í Aztiq

Jóhann segist í framhaldinu ætla að sinna eigin fjárfestingum, meðal annars þegar kemur að fasteignaviðskiptum- og þróun, og þá verður hann áfram hluthafi í Aztiq-fjárfestingarsamstæðunni. Á meðal félaga í eigu Aztiq er Flóki Invest en það heldur utan um þær fjárfestingar Aztiq á Íslandi sem tengjast ekki lyfjageiranum með beinum hætti, svo sem fasteignaverkefni, hótelrekstur og samfélagsverkefni. Í árslok 2024 námu heildareignir Flóka Invest tæplega 14 milljörðum.

Áður en Jóhann, sem er hagfræðingur að mennt, tók til starfa hjá Aztiq fyrir meira en sautján árum þá var hann meðal annars framkvæmdastjóri hjá Kaupþing í Stokkhólmi og yfirmaður áhættu- og fjárstýringar hjá Icelandair Group.

Hlutabréfaverð Alvotech hefur lækkað um meira en helming frá því í byrjun nóvember þegar ljóst varð að seinkun yrði á samþykkt markaðsleyfis í Bandaríkjunum fyrir þrjár nýjar fyrirhugaðar hliðstæður frá félaginu.

Alvotech mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung eftir lokun markaða í Bandaríkjunum 18. mars næstkomandi. Útistandandi afkomuspá gerir ráð fyrir að tekjur síðasta árs verði um 570 til 600 milljónir dala og aðlagaður EBITDA-hagnaðurinn 130 til 150 milljónir dala. Á árinu 2026 er áætlað að tekjurnar verði 650 til 700 milljónir dala og aðlöguð EBITDA á bilinu 180 til 220 milljónir dala.


Tengdar fréttir

Ætlar að vera „nánast skuld­laus og með afar sterka sjóðstöðu“ eftir tvær risasölur

Fjárfestingafélag Róberts Wessman fær að óbreyttu í sinn hlut samtals nálægt einn milljarð Bandaríkjadala í reiðufé við sölu á lyfjafyrirtækjunum Adalvo og Alvogen US sem verður að stórum hluta nýtt til að gera upp skuldir Aztiq. „Við erum að breyta aðeins um stefnu þegar kemur að fjármögnun félagsins. Við ætlum að vera nánast skuldlaus og með afar sterka sjóðstöðu. Það verður staðan eftir þessi viðskipti,“ segir Róbert, sem fullyrðir að Aztiq samsteypan sé „öflugasta fjárfestingafélag landsins“ þegar kemur að umfangi eigna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×