Viðskipti innlent

69 sagt upp í tveimur hóp­upp­sögnum

Atli Ísleifsson skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Einar

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í febrúar, þar sem 69 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Á vef Vinnumálastofnunar segir að þar af hafi 24 verið sagt upp á sviði upplýsingatækni og 45 við vísindarannsóknir.

Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu apríl til september 2026.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.

Í janúar bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir, þar sem 84 starfsmönnum var sagt upp störfum. Þær uppsagnir voru á sviði á sviði fiskeldis og verður öllum boðið starf að nýju.


Tengdar fréttir

Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu

Íslensk erfðagreining hefur sagt upp 45 manns í dag vegna skipulagsbreytinga hjá fyrirtækinu. Uppsagnirnar ná samkvæmt heimildum Vísis til margra deilda og reynslumikils starfsfólks sem starfar í höfuðstöðvunum í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Eftir breytingarnar starfa 150 manns hjá fyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×