Nefndin „föst í eitruðum kokteil“ og þarf að láta glitta í mögulega vaxtahækkun
Þróunin frá síðustu vaxtaákvörðun hefur verið einstaklega óhagstæð en peningastefnunefnd er núna „föst í eitruðum kokteil“ þar sem fer saman hækkandi verðbólga, aukið atvinnuleysi, kólnandi hagkerfi og verðbólguvæntingar rokið upp. Ef ekki á illa að fara, að mati greinenda Acro verðbréfa, þá þarf nefndin núna að „standa í lappirnar“ með mun hvassari tóni í yfirlýsingu sinni en áður og gefa út skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að hækka vexti.
Tengdar fréttir
Því lengur sem verðbólgan er yfir markmiði því meira rýrnar trúverðugleikinn
Með hliðsjón af verðbólguskoti síðustu mánaða og væntingum um betri hagvaxtarhorfur í ár þá kom mjúkur tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar á óvart, að sögn efnahagsráðgjafa IFS. Miðað við verri verðbólguhorfur til skamms tíma telja sumir hagfræðingar sennilegt að bíða þurfi fram í ágúst eftir næstu vaxtalækkun.