Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Birgir Olgeirsson skrifar 12. mars 2026 14:02 Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar Vísir/Vilhelm Forstjóri Sýnar vill skoða möguleika á að koma upp sjónvarpsinnviðafélagi sem yrði nokkurs konar samstarf á milli Sýnar, Símans og Ríkisútvarpsins þegar kemur að tæknilegum kostnaði sem fylgir sjónvarpsútsendingum
Tilkynnt var í morgun að Síminn hefði gert tilboð upp á 5,2 milljarða króna í vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Tilboðið barst frá Símanum eftir að Sýn tilkynnti undir lok síðasta árs að fjölmiðlahluti félagsins væri í endurskoðun. Herdís Dröfn Fjeldsted sér fram á að rekstrargrundvöllur Sýnar muni styrkjast til lengri tíma með kaupunum en sjónvarpshluti Sýnar fylgir ekki með í kaupunum. Hún segir að unnið hafi verið að mikilli hagræðingu innan sjónvarpsrekstursins en hægt væri að ná talsverðri hagræðingu sem myndi fylgja samstarfi fjölmiðla við tæknilega útfærslu sjónvarpsútsendinga. „Við höfum verið í miklu samtali við stjórnvöld um fjölmiðlamarkaðinn heilt yfir og lagt áherslu á að þar séu tækifæri til að gera betur. Við höfum líka rætt um að það væri áhugavert að til væri sjónvarpsinnviðafélag þar sem tæknilegir innviðir eru sameiginlegir. Það er eitthvað sem yrði áhugavert og við höfum átt samtöl um það,“ segir Herdís. Verði af kaupunum mun Síminn eignast Vísi, ja.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveituna Tal. Félögin hafi komist að samkomulagi um helstu skilmála en búast megi við að ferlið sem sé fram undan muni taka upp undir tólf mánuði. „Það sem við höfum verið að horfa til er að styrkja félagið til lengri tíma og styrkja reksturinn og þessi ákvörðun er mjög stefnumarkandi og með þessari ákvörðun náum við að styrkja rekstur félagsins til lengri tíma,“ segir Herdís.
Sýn Síminn Fjölmiðlar Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira