Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Stefán Árni Pálsson skrifar 1. apríl 2026 11:00 Ella skipta algjörlega um starfsframa. Athafnakonan Elín María Björnsdóttir er þekktust hér á landi sem vinsæl sjónvarpsstjarna á sjónvarpsstöðinni Skjá Einum á sínum tíma. En í dag er hún þekkt sem alþjóðlegur leiðtogamarkþjálfi og búin að vinna úti um allan heim með stjórnendateymum og fyrirtækjum og alþjóðlegum leiðtogum við mjög góðan orðstír.
Nú er Ella, eins og hún er oftast kölluð, búin að stofna ráðgjafarfyrirtækið Valhalla sem er með skrifstofur í einu af elstu og fallegustu húsum landsins, Gimli á Bernhöftstofu. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði hvað Ella er að gera þessa dagana um allan heim og hvernig hún er búin að innrétta húsið á alveg einstaklega fallegan og klassískan hátt. En eins og áður segir vakti Ella fyrst athygli á Skjá Einum. „Það er nefnilega svo skrítið að hugsa til þess að það eru 25 ár eða eitthvað síðan ég byrjaði með þessa þætti. En síðan þá er ég eðlilega búin að gera ýmsa aðra hluti og búin að vera úti um allan heim,“ segir Ella og heldur áfram. Þykir vænt um þennan tíma „Ég hef verið í tveimur stórum stjórnunarstöðum hér á Íslandi. Þegar ég kem inn í nýja hópa segja allir við mig, ég kannast eitthvað við þig. Já, Brúðkaupsþátturinn segja allir. Mér þykir náttúrulega ofboðslega vænt um þennan tíma. Þetta voru ofsalega skemmtilegir þættir og mér þótti ofboðslega gaman, því að ég fékk að fara inn á heimili fólks og fylgja þeim eftir í kringum brúðkaupið. Þetta var nú bara eiginlega einn af fyrstu raunveruleikaþáttunum hér á landi.“ En að húsinu í Lækjargötunni, Gimli. „Fyrir tæpum tveimur árum síðan þá hófum við Margrét Ármanns okkar veg að starta ráðgjafarfyrirtæki. Það er eitthvað sem ég er búin að ganga með í maganum í tuttugu ár að gera eitthvað sjálf. Við fórum af stað með þessa vegferð, hún úr sínum bakgrunni og ég úr mínum. En það sem var eiginlega skemmtilegt var að þegar við fórum að skoða þetta þá eiginlega datt þetta hús í hendurnar á okkur. Þetta var nýkomið inn á og ég sé þetta og ég algjörlega kolféll fyrir húsinu og þetta er umgjörðin sem við þurfum til að móta umgjörð.“ Hún segist vinna með stjórnendum og leiðtogum í starfinu sem markþjálfi. „Ég leiðbeini þeim hvort sem það er rekstur, mannauðsmál eða svona menning innan fyrirtækja. Þannig að við erum með bæði með vinnustofur og erum með langtímasamstarf við fyrirtæki þar sem við erum að vinna með þeirra starfsmönnum og hjálpa þeim. Svo erum við með einstaklingsþjálfun og bæði þá stjórnendur hérlendis og erlendis.“
Ísland í dag Vala Matt Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Fleiri fréttir Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Sjá meira