„Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 21:28 Dominic Calvert-Lewin lagar hárteygjuna eftir hártogið. Getty/Carl Recine Dominic Calvert-Lewin, framherji Leeds United, var kátur eftir 2-1 sigur á Manchester United á Old Trafford í kvöld en þetta var fyrsti deildarsigur liðsins þar síðan 1981. „
Þetta eru gríðarlega mikilvæg úrslit fyrir okkur. Við komum hingað til að vinna, það var þannig sem við stilltum upp. Við framkvæmdum leikplanið og fórum heim með þrjú stig. Við erum himinlifandi,“ sagði Dominic Calvert-Lewin við Sky Sports. United-menn misstu Lisandro Martinez af velli með rautt spjald fyrir að rífa í hár Calvert-Lewin. Hvað fannst honum um það? „Ég veit það ekki, ég sem ekki reglurnar. Ég fann að það var togað í hárið á mér. Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér og hann tekur ákvarðanirnar. Óheppilegt fyrir hann, hvort sem hann ætlaði sér þetta eða ekki. Ég er ekki langrækinn,“ sagði Calvert-Lewin. Hann var hetjan hinum megin á vellinum þegar hann bjargaði á marklínu í leiknum. „Ég var bara í augnablikinu, með hugann við leikinn, einbeittur og tilbúinn að sinna mínu starfi. Sem betur fer var ég þarna til að bjarga boltanum af línunni og það má segja að það bæti upp fyrir færin sem ég hefði átt að nýta hinum megin á vellinum,“ sagði Calvert-Lewin. Hann var spurður um það hvort úrslitin gæfu liðinu sjálfstraust: „Já, það gera þau. Það er mikilvægt að við lesum ekki of mikið í utanaðkomandi umræðu og höldum áfram að einbeita okkur að því sem er fram undan,“ sagði Calvert-Lewin. „Það er auðvelt að koma hingað og skrá sig á spjöld sögunnar, en það skiptir engu máli í lok tímabilsins þegar stigin eru talin saman. Það er það eina sem við einbeitum okkur að – einn leikur í einu, og að tryggja að við höldum sæti okkar í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Calvert-Lewin. Lisandro Martinez togar hér í hárið á Dominic Calvert-Lewin í leiknum.Getty/Richard Sellers
Enski boltinn Manchester United Leeds United Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Willum hrifinn af norska módelinu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira