Viðskipti innlent

Icelandair grunar flug­menn um græsku

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm

Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.

Greint var frá því í morgun að flugi Icelandair til Brussel hafi seinkað um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn. Þetta er þriðja áætlunarferð félagsins frá 5. maí sem ýmist er aflýst eða seinkað vegna skorts á áhafnarmeðlimum þegar forföll koma upp. Fyrst var um flug til Kaupmannahafnar að ræða sem aflýst var vegna mönnunar, síðan flugi til Seattle af sömu ástæðu og í dag seinkaði flugi til Brussel.

Óásættanlegt ef rétt reynist

„Þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) fullyrði að engar aðgerðir séu hafnar er tengjast kjaraviðræðum, er margt sem bendir til þess eftir nánari skoðun félagsins á ástæðum þessara tilteknu raskana á flugi, að um óformlegar aðgerðir sé að ræða,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Segir að þær varði ákveðinn sveigjanleika sem sé nauðsynlegur frá degi til dags í flugrekstri. Óvenjulegt sé að ekki náist að manna flug þegar um forföll sé að ræða og séu vísbendingar um samantekin ráð og þrýsting að sýna ekki sveigjanleika í þessum aðstæðum.

„Það er mikilvægt að allir aðilar sýni ábyrgð í þessari stöðu og það er óásættanlegt ef rétt reynist að verið sé að valda félaginu tjóni og farþegum óþægindum vegna óformlegra aðgerða. Staðan er krefjandi í flugrekstri um þessar mundir vegna óvissu í alþjóðaumhverfinu og hefur eldsneytisverð til að mynda tvöfaldast, en það er einn stærsti kostnaðarliður félagsins,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair.

„Á sama tíma er um að ræða stétt sem nýtur framúrskarandi starfskjara, einna bestu kjara sem flugmönnum á Norðurlöndum bjóðast. Kjaraviðræðurnar eru nú á forræði Ríkissáttasemjara og hafa sinn gang þar. Það er brýnt að við náum skynsamlegum samningum sem allra fyrst.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×