„Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2026 08:00 David Raya, markvörður Arsenal, biðlar til dómarans Chris Kavanagh í leiknum gegn West Ham United. getty/Shaun Brooks Jamie Carragher segir engan vafa á því að brotið hafi verið á David Raya, markverði Arsenal, í markinu sem var dæmt af West Ham United í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Eitt stærsta augnablik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni kom í uppbótartíma leiks West Ham og Arsenal í fyrradag. Callum Wilson hélt þá að hann hefði jafnað í 1-1 en eftir nokkuð langa bið var markið dæmt af vegna brots Pablo á Raya. Dómurinn var stór og þýðingarmikill, bæði í topp- og botnbaráttunni, en réttur að mati Carraghers. „Gleymið þessu augljósa. Þetta tók svona langan tíma því það var svo margt að skoða. Pressan sem fylgir þessari ákvörðun, hvaða þýðingu hún hafði, ekki bara fyrir þessi tvö lið, heldur einnig Manchester City og Tottenham, er svo mikil að ég held að enginn ætti að kvarta yfir því hversu langan tíma þetta tók,“ sagði Carragher í Monday Night Football á Sky Sports í gær. „Komust þeir að réttri niðurstöðu? Já. Það eru tveir hópar fólks sem fannst þetta ekki vera brot. Þeir sem hafa tengsl við City og West Ham og þeir sem vilja ekki að Arsenal vinni deildina. Ástæðan fyrir öllu uppþotinu er að það eru svo margir sem vilja ekki að Arsenal verði meistari.“ Komast ekki upp með allt Carragher gefur lítið fyrir þau rök að Arsenal beiti öllum mögulegum brögðum í föstum leikatriðum og komist upp með meira í þeim efnum en andstæðingar þeirra. „Þú getur ekki gripið í hönd markvarðar og stöðvað hann í að lyfta höndinni. Það getur ekki gerst. Fólk er vælandi á samfélagsmiðlum og alls staðar: Arsenal kemst upp með allt. Mér finnst þeir ekki gera það,“ sagði Carragher. Leandro Trossard skoraði eina mark leiksins á Lundúnaleikvanginum í fyrradag en skömmu áður varði Raya frábærlega frá Mateus Fernandes. Arsenal er með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en City getur minnkað það niður í tvö stig með sigri á Crystal Palace annað kvöld. Eftir að hafa tapað fyrir City, 2-1, 19. apríl hefur Arsenal unnið þrjá deildarleiki í röð án þess að fá á sig mark. Næsti leikur Arsenal er gegn Burnley á Emirates á mánudaginn kemur.
Enski boltinn Arsenal FC West Ham United Tengdar fréttir Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Markið sem var dæmt af West Ham United í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni var að sjálfsögðu til umræðu í Sunnudagsmessunni. Að mati sérfræðinga hennar komst dómari leiksins að réttri niðurstöðu. 12. maí 2026 07:02 Í fámennan hóp markvarða Spánverjinn David Raya tryggði sér í gær gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni er hann hélt hreinu í sigri Arsenal á West Ham. Hann hefur haldið hreinu 18 sinnum í vetur. 11. maí 2026 15:30 Hvar er eiginlega samræmið? Það er búið að rífast mikið um VAR-dóminn umdeilda í leik West Ham og Arsenal í gær og það verður líklega gert næstu vikurnar. 11. maí 2026 14:43 West Ham kvartar til dómaranefndar Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni. 11. maí 2026 10:15 „Mikið kaos en ekki spurning að þarna var brot“ „Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi og þessari tölu,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 1-0 sigurinn gegn West Ham í dag sem færði liðið afar nálægt langþráðum Englandsmeistaratitli. 10. maí 2026 19:15 Allt brjálað í lokin en titillinn blasir við Skyttunum Arsenal er tveimur sigrum frá því að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár, eftir óhemju dramatískan 1-0 sigur gegn West Ham í Lundúnaslag í dag. 10. maí 2026 17:30 Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira
Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Markið sem var dæmt af West Ham United í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni var að sjálfsögðu til umræðu í Sunnudagsmessunni. Að mati sérfræðinga hennar komst dómari leiksins að réttri niðurstöðu. 12. maí 2026 07:02
Í fámennan hóp markvarða Spánverjinn David Raya tryggði sér í gær gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni er hann hélt hreinu í sigri Arsenal á West Ham. Hann hefur haldið hreinu 18 sinnum í vetur. 11. maí 2026 15:30
Hvar er eiginlega samræmið? Það er búið að rífast mikið um VAR-dóminn umdeilda í leik West Ham og Arsenal í gær og það verður líklega gert næstu vikurnar. 11. maí 2026 14:43
West Ham kvartar til dómaranefndar Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni. 11. maí 2026 10:15
„Mikið kaos en ekki spurning að þarna var brot“ „Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi og þessari tölu,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 1-0 sigurinn gegn West Ham í dag sem færði liðið afar nálægt langþráðum Englandsmeistaratitli. 10. maí 2026 19:15
Allt brjálað í lokin en titillinn blasir við Skyttunum Arsenal er tveimur sigrum frá því að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár, eftir óhemju dramatískan 1-0 sigur gegn West Ham í Lundúnaslag í dag. 10. maí 2026 17:30