Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 12. maí 2026 11:36 Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA telur að forstjóri Icelandari sé að reyna að hafa áhrif á kjaradeilu flugmanna við félagið með því að boða það á fund á föstudag. Það sé óeðlilegt. Vísir Formaður íslenskra atvinnuflugmanna er ósáttur við að forstjóri Icelandair hafi boðið flugmönnum á fund með sér á föstudaginn. Hægt sé að túlka fundarboðið, sem barst í morgun, þannig að verið sé að reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu. Slíkt hafi verið gert áður.
Þriðji sáttafundur í kjaradeilu Félags íslenskra flugmanna (FÍA) og Icelandair var boðaður hjá ríkissáttasemjara í morgun. Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA segir að Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair hafi boðað flugmenn á sinn fund á föstudag. „Forstjóri Icelandair sendi póst á alla flugmenn í morgun. Þar býður hann flugmönnum til fundar á föstudaginn næstkomandi klukkan tvö til að ræða stöðuna. Við erum ekkert voðalega hressir með það. Kjaraviðræður eiga að eiga sér stað við stéttarfélagið og það er lögbundið,“ segir Jón Þór. Hann telur að verið sé að reyna að hafa áhrif á félagsmenn sína, það hafi verið gert áður. „Það má túlka þetta þannig að það sé verið að reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu. Það er ekki í fyrsta skipti sem það gerist. Það var gert í deilunni 2020. Það var líka boðað til sambærilegs fundar með yfirflugstjóra og flugrekstrarstjóra fyrir tveimur vikum. Þannig að þetta er óhefðbundið,“ segir Jón Þór. Segir forföll flugmanna ekki tengjast deilunni Icelandair sendi frá sér yfirlýsingu í gær um að félagið gruni flugstjóra um að hafa ráðist í óformlegar aðgerðir í kjaradeilunni með óvæntum forföllum áhafna sem hafi komið upp í þrígang síðustu vikur. Jón Þór vísar því alfarið á bug. „Ég veit ekki hvernig hægt sé að túlka það þegar það er fyrst og fremst verið að vinna eftir kjarasamningi. Ég held að þessi túlkun sé langsótt,“ segir Jón Þór. Aðspurður hvort það sé hluti af þessari kjaradeilu að mæta ekki svarar Jón Þór: „Nei, engan veginn“.
Flug Kjaramál Ferðaþjónusta Ferðalög Bensín og olía Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira