Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2026 15:52 Heilbrigðisstarfsmenn að störfum í Kongo árið 2019. AP/Jerome Delay Nýr ebólufaraldur hefur greinst í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 65 eru látnir en að minnsta kosti 246 eru smitaðir. Veikin hefur greinst í dreifingu í Ituri-héraði í Austur-Kongó og þá aðallega í tveimur bæjum við stórar gullnámur.
Forsvarsmenn Sóttvarnastofnunar Afríku sendu í dag út yfirlýsingu um faraldurinn en þar kom fram að búið væri að boða embættismenn frá Austur-Kongó og nágrönnum þeirra í Úganda og Suður-Súdan, auk annarra samstarfsaðila, á fund. Stjórnvöld í Austur-Kongó hafa ekki lýst yfir faraldri, formlega, en það ku standa til í dag eins og fram kemur í frétt BBC. Þetta er sautjándi faraldurinn í Austur-Kongó síðan ebóla greindist fyrst þar árið 1976. Talið er að veikin hafi fyrst borist í menn úr leðurblökum. Talið er að um fimmtán þúsund manns í Afríku hafi dáið vegna ebólu á undanförnum fimmtíu árum. Síðasta faraldri í Austur-Kongó lauk formlega í maí 2021. Sjá einnig: Segja ebólufaraldri lokið í Austur-Kongó Þrátt fyrir að faraldrinum hafi formlega verið lokið dóu 45 vegna ebólu í fyrra. Frá 2018 til 2020 dóu nærri því 2.300 manns vegna ebólu í Austur-Kongó en það er skæðasti faraldur veikinnar þar í landi. Þrjár mismunandi veirur geta valdið ebóluveikinni.AP/Frederick Murphy Þrjár mismunandi veirur valda ebólu og dreifast þær manna á milli með líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra. Til er bóluefni gegn einungis einni af veirunni sem veldur ebólu. Fleiri eru í þróun.
Austur-Kongó Ebóla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira