Lífið

Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Euro­vision

Eiður Þór Árnason skrifar
DARA með lagið Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu.
DARA með lagið Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu. Getty/Christian Bruna

Búlgaría sigraði Eurovision sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld. Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer þar með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár. DARA með lagið Bangaranga fékk alls 516 stig.

Ísrael hlaut 343 stig samanlagt frá dómnefndum og áhorfendum og mátti greinilega heyra baulað á keppendur Ísraels þegar áhorfendastigin þeirra voru tilkynnt og landið færðist efst í stigatöfluna. Sat Ísrael á toppnum allt þar til áhorfendastig Búlgaríu voru tilkynnt undir lok talningarinnar. 

Færri lönd tóku þátt í Eurovision nú en síðustu ár þar sem Spánn, Ísland, Írland, Holland og Slóvenía sniðgengu keppnina vegna andstöðu við þátttöku Ísraels. Þetta var í sjötugasta sinn sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór fram. 

Noam Bettan flutti lagið Michelle fyrir Ísrael.Getty/Ian West/PA Images

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.