Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Valur Páll Eiríksson skrifar 22. maí 2026 10:02 Tonda Eckert er stjóri Southampton. Vísir/Getty Skýrsla ensku fótboltadeildanna, EFL, gagnrýnir harðlega stjórendur hjá Southampton og þá sérlega þjálfarann Tonda Eckert, í skýrslu sem fylgir dómi í njósnamáli félagsins. Ungir starfsmenn hafi verið neyddir í aðstæður sem þeim leið illa í.
Samkvæmt skýrslu EFL var ákveðin og viljandi stefna félagsins að njósna um andstæðinga sína sem var framkvæmd með hörmulegri meðferð á ungu starfsfólki sem var neytt til að hlýða fyrirmælum. Skýrslan fylgdi dómi Southampton sem var dæmt úr umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni vegna brota sinna. Auk þess hefur liðið næstu leiktíð með fjögur stig í mínus þar sem félagið var fundið sekt um að hafa njósnað um þrjá andstæðinga sína á nýafstaðinni leiktíð. Southampton átti að mæta Hull City í úrslitaleik umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi en Middlesbrough, sem Southampton vann í undanúrslitum umspilsins, tekur sæti liðsins í úrslitaleiknum. Starfsnemi sendur á vettvang Eflaust er óþægilegt fyrir Tonda Eckert, þjálfara Southampton, að lesa dóminn. Hann er sagður hafa gefið grænt ljós á að senda ungan starfsmann á æfingasvæði Middlesbrough til að athuga hvort lykilmaður í liði Middlesbrough væri heill fyrir leik liðanna. Starfsfólk Middlesbrough sá mann taka upp æfingu liðsins þann 7. maí, komst að því að sá var greinandi í starfsteymi Southampton og hafði strax samband við EFL. Það leiddi til ákæru EFL á hendur suðurstrandarfélaginu vegna atviksins, auk svipaðra atvika gagnvart bæði Oxford United í desember og Ipswich Town í apríl. Viðkomandi var starfsnemi í greiningardeild Southampton og var sendur til Oxford í desember, en hann hafnaði verkefninu í Ipswich. Sönnunargögn sýni að njósnaverkefni unga mannsins hafi verið fyrirskipuð af háttsettum starfsmönnum félagsins. Samkvæmt vitnisburði hans var hann beittur miklum þrýstingi af yfirmönnum. Neyddir til að gera siðferðislega ranga hluti Nefnd EFL fór hörðum orðum um stjórnendur hjá Southampton „vegna þess hvernig yngri starfsmenn voru settir undir þrýsting til að framkvæma starfsemi sem þeim fannst að minnsta kosti siðferðilega röng.“ Í skýrslunni sagði enn fremur: „Slíkt starfsfólk var í viðkvæmri stöðu, án starfsöryggis og hafði takmarkaða getu til að mótmæla eða standa gegn fyrirmælum sem þeim voru gefin.“ Félagið hafi vísvitandi beitt ólögmætum aðferðum til að öðlast samkeppnisforskot með því að sækja upplýsingar á æfingasvæði andstæðinga sinna. „Það fól í sér miklu meira en saklausa starfsemi og sérstaklega fordæmanlega nálgun í notkun yngri starfsmanna til að framkvæma leynilegar athuganir að fyrirmælum eldri starfsmanna.“ Hvað þýðir þetta? Orðspor Southampton og starfsmanna félagsins er gott sem ónýtt. Að missa af umspili og hefja næstu leiktíð með fjögur mínusstig er smáræði í samanburði við orðsporshnekkina sem sérlega harðorður dómur EFL ber með sér. Félagið hefur þegar harmað mistök sem áttu sér stað og fordæmt hegðun starfsfólks í málinu. Það virðist hins vegar sem þjálfaranum Tonda Eckert sé ekki stætt í starfi. Þá gæti reynst honum snúið að finna næsta þjálfarastarf sökum málsins. Ljóst er að eigandinn Dragan Solak og aðrir hæstráðendur þurfa að setjast niður með stuðningsmönnum og skýra málið út. Endurbyggja þarf traust við stuðningsfólk og þá sem standa félaginu nærri. Framkvæmdastjórinn Phil Parsons er einnig í slæmri stöðu en hann gaf frá sér yfirlýsingu þegar kæra Middlesbrough var lögð fram sem var að öndverðum meiði við dóminn. Hans orðspor er einnig í ruslinu í ljósi niðurstöðu og skýrslu EFL. Fjölmargir stuðningsmenn hafa sagst ætla að segja upp ársmiða sínum og starfsfólk félagsins er margt í áfalli. Sannfæra þarf líklega ákeðna leikmenn um að stökkva ekki frá borði. Styrktaraðilar eru þá uggandi vegna stöðunnar og hafa áhyggjur af áhrifum á eigin vörumerki sökum tengsla við Southampton. Það er því heljarinnar verkefni sem stendur frammi fyrir eigandanum Solak og stórar ákvarðanir sem geta haft mikið um framtíð skemmds félags að segja.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Íslenski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira