Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2026 23:32 Florian Wirtz olli vonbrigðum í vetur á sinni fyrstu leiktíð með Liverpool. Getty/Peter Byrne Í lokauppgjörsþætti Fantasýn var farið yfir víðan völl varðandi leiktíðina sem var að ljúka í fantasy-leik ensku úrvalsdeildarinnar.
Þeir Sindri Kamban og Albert Þór Guðmundsson fóru meðal annars yfir það helsta varðandi sín fantasy-lið en Albert var einn af þeim sem féll í þá „gildru“ að veðja á Þjóðverjann Florian Wirtz sem stóð engan veginn undir væntingum hjá Liverpool á leiktíðinni, á sinni fyrstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. „Ég seldi hann í umferð sjö og þá hafði hann gefið mér nákvæmlega ekkert. Þetta voru tvö stig, tvö stig, þrjú stig, þrjú stig, núll stig og tvö stig. Svo seldi ég hann í umferð sjö en hann hélt áfram svona,“ sagði Albert sem náði sér betur á strik eftir að hafa loks losað sig við Wirtz. „Það var ekki fyrr en í 14. umferð sem hann fékk sjö stig. Þá átti hann eina stoðsendingu. Þetta er rosalegt. Þetta átti að vera einhver svakalegur leikmaður sem væri að fara að breyta hlutunum,“ sagði Albert en rifjaði svo upp að líklega hefði gengið betur hefði hann hlustað á ráð landsliðsmannsins fyrrverandi Rúriks Gíslasonar, sem þekkir það að spila á Englandi og í Þýskalandi. „Við fengum einn mætan mann í byrjun tímabilsins, slógum á þráðinn til Rúriks Gíslasonar, og hann kallaði þetta bara. Áður en þetta byrjaði. Hann sagði bara: Þessi gæi er ekki að fara að meika það í deildinni. Hann er of verndaður í Þýskalandi, vanur að allir segi já við sig, og þekkir ekki breska kúltúrinn,“ sagði Albert en bætti léttur við: „Þá var Rúrik reyndar að vitna í einhvern kúltúr sem hann upplifði sem 18 ára polli fyrir tveimur áratugum síðan, þannig að mögulega hafa hlutirnir eitthvað breyst. En hvort sem hann hafði rétt fyrir sér á réttum eða röngum forsendum þá hafði hann rétt fyrir sér og við gefum honum kredit fyrir það.“ Hægt er að hlusta á þáttinn í heild hér að ofan eða á tal.is/fantasn og á öðrum helstu hlaðvarpsveitum.
Enski boltinn Fantasýn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira