Viðskipti innlent

Há­setar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimm­tán daga

Árni Sæberg skrifar
Skipverjar á Sigurði VE gerðu gott mót þegar þér héldu til sjós í febrúar og mars.
Skipverjar á Sigurði VE gerðu gott mót þegar þér héldu til sjós í febrúar og mars. Vísir/Vilhelm

Snörp en verðmæt loðnuvertíð hafði ekki aðeins góð áhrif á afkomu útgerðanna heldur gaf hún vel í aðra hönd skipverja um borð í skipum útgerðanna.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ávarpi Stefáns Friðrikssonar, forstjóra Ísfélagsins, í uppgjöri félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung, sem gefið var út í gær. 

Þar segir hann að loðnuvertíðin hafi gengið vel en það sé engin tilviljun þegar kemur að rekstri Ísfélagsins. Fjárfestingar undanfarna ára, bæði í skipum og landvinnslum félagsins geri það að verkum að hægt sé að hámarka verðmætin á stuttum vertíðum. 

„Það er afar ánægjulegt hversu vel til tókst að skapa þessi verðmæti sem verða til vegna góðra og samhentra áhafna, góðs sölustarfs og síðast en ekki síst öflugs starfsfólks í landi.“ 

Fyrsta loðnulöndunin hafi verið þann 7. febrúar og síðasta löndun þann 19. mars og vertíðin hafi því staðið yfir í 41 dag. Eftir leiðréttingar í samræmi við kjarasamninga til hækkunar á aflaverðmæti skipanna hafi hásetahluturinn án orlofs á Sigurði VE og Heimaey VE á loðnuvertíðinni verið á bilinu 8,7 til 8,9 milljónir króna. Skipin hafi hvort um sig verið á sjó í um það bil 350 klukkustundir, eða sem nemur tæplega fimmtán dögum á sjó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×