Körfubolti

Elvar og fé­lagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum

Andri Broddason skrifar
Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife eru komnir yfir í viðureigninni á móti Real Madrid
Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife eru komnir yfir í viðureigninni á móti Real Madrid Getty/Jón Gautur

Elvar Már Friðriksson og félagar í La Laguna Tenerife unnu Real Madrid í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Þeir tryggðu sigurinn með þriggja stiga körfu í blálokin til að komast einu stigi yfir. Leikurinn endaði 98-97.

Fyrsti leikur í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta fór fram í kvöld. La Laguna Tenerife endaði deildina í áttunda sæti og fá þá deildarmeistara Real Madrid í fyrstu viðureign úrslitakeppninnar.

Real Madrid byrjaði sterkt en Tenerife náði að halda í við þá. Eftir þrjá leikhluta var Real Madrid fjórum stigum yfir, 75-71.

Í fjórða leikhluta náði La Laguna Tenerife að komast yfir. Það varði ekki lengi þar sem Real Madrid endurheimti forystuna fljótt aftur með frábærri spilamennsku.

Þegar ellefu sekúndur voru eftir af leiknum var Real Madrid að vinna 97-95. Þá taka La Laguna Tenerife menn leikhlé og byrja með boltann á vallarhelmingi Real Madrid. Þar fær Jaime Fernandez sendingu og setur niður þriggja stiga körfu þegar fjórar sekúndur eru eftir og reyndist það lokakarfa leiksins. Tenerife vann leikinn 98-97.

Aðeins þarf að vinna tvo leiki til að vinna viðureignina. Real Madrid er þá komið með bakið upp að vegg þar sem La Laguna Tenerife leiðir viðureignina 1-0. Næsti leikur er spilaður á Tenerife.

Jaime Fernandez sem tryggði sigurinn fyrir Tenerife var stigahæstur í leiknum með sautján stig ásamt liðsfélaga sínum Wesley Van Beck. Elvar Már Friðriksson spilaði ekki mikið en var með fjögur stig og þrjár stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×