„Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2026 10:51 Rasmus Höjlund hefur endanlega yfirgefið Manchester United og Napoli er ekki lengur með hann að láni heldur er hann orðinn leikmaður í eigu félagsins. Getty/James Gill Rasmus Höjlund hefur skrifað undir samning við ítalska stórliðið Napoli til frambúðar eftir frábæra frammistöðu sína á nýliðnu tímabili.
Daninn var á láni hjá Napoli frá Manchester United á síðasta tímabili og skoraði 16 mörk í 44 leikjum. Hann var mikilvægur hlekkur í að tryggja liðinu annað sætið í Seríu A og tryggja þar með þátttöku í Meistaradeildinni á komandi tímabili. Fjölmargir fjölmiðlar hafa greint frá því að ákvæði í samningnum hafi gert félagaskiptin varanleg og á miðvikudag staðfesti United að félagið hefði látið hann fara. Rasmus Hojlund has joined Napoli on a permanent transfer.Everyone at the club would like to wish Rasmus all the very best for the future ✊— Manchester United (@ManUtd) June 3, 2026 „Allir hjá félaginu óska Rasmus alls hins besta í framtíðinni,“ segir í tilkynningu á vefsíðu United. Höjlund kom til United frá Atalanta árið 2023 en sló aldrei í gegn á Old Trafford. Nú heldur hann áfram ferli sínum á Ítalíu. „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford. Þar lét ég æskudraum minn rætast,“ skrifaði Höjlund í færslu á Instagram. Danski framherjinn lék alls 95 leiki í öllum keppnum með Manchester United og skoraði í þeim 26 mörk þar af 14 mörk í 62 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. View this post on Instagram A post shared by Rasmus Winther Højlund (@rasmus.hoejlund)
Enski boltinn Manchester United Ítalski boltinn Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Sjá meira