KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2026 12:14 Sara, Emma og Rebekka kampakátar í dag. vísir/sigurjón Landsliðskonan frábæra Sara Rún Hinriksdóttir hefur kvatt uppeldisfélag sitt Keflavík og er gengin í raðir KR. KR-ingar hafa einnig endurheimt Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur og tryggt að Rebekka Rut Steingrímsdóttir haldi kyrru fyrir, og ætla sér greinilega stóra hluti í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð.
Sara gerði samning til tveggja ára. Hún er 29 ára gömul og hefur leikið sem atvinnumaður á Spáni og Ítalíu, í Rúmeníu og Bretlandi. Hún sneri aftur heim til Keflavíkur í byrjun árs 2024 og hefur verið einn besti leikmaður Bónus-deildarinnar. Í vetur skoraði Sara að meðaltali 19,5 stig í leik í deildinni og var næstefst Íslendinga í þeim efnum, á eftir Danielle Rodriguez. Hún tók 6,1 fráköst og gaf 3 stoðsendingar, og var með næstbesta framlag Íslendinga á eftir Rodriguez. Emma Sóldís, sem er einnig landsliðskona, snýr nú heim í KR þar sem hún er uppalin. Hún hefur verið á mála hjá Hamri/Þór, eftir að hafa snúið heim til Íslands úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék með Liberty Flames. Meiðsli hafa hins vegar haft mikil áhrif á feril Emmu en hún sleit krossband í hné í febrúar í fyrra, í annað sinn á ferlinum. Hin 17 ára gamla Rebekka Rut Steingrímsdóttir hefur svo framlengt samning sinn við KR og verður áfram í burðarhlutverki hjá liðinu. Hún skoraði að meðaltali 15,1 stig í leik í Bónus-deildinni í vetur, tók 4,9 fráköst og gaf 2,9 stoðsendingar. Rebekka stimplaði sig einnig af krafti inn í íslenska landsliðið þegar hún var valin í fyrsta sinn fyrir leiki í nóvember við Serbíu og Portúgal í undankeppni EM.
Bónus-deild kvenna KR Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Íslenski boltinn Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Sjá meira