„Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2026 14:31 Sara Rún Hinriksdóttir verður í KR-treyjunni næstu tvö árin. vísir/Sigurjón Landsliðskonan magnaða Sara Rún Hinriksdóttir er mætt í Vesturbæinn með það að markmiði að vinna titla með KR í körfubolta, að minnsta kosti næstu tvö árin. Hún kveður uppeldisfélag sitt Keflavík í góðu.
KR endaði í 3. sæti deildarkeppni Bónus-deildarinnar í vetur en féll svo úr leik gegn Söru og stöllum hennar í 8-liða úrslitum í úrslitakeppninni. Sara var svo kynnt til leiks sem KR-ingur í Vesturbænum í dag og kveður því Keflavík í annað sinn á ferlinum, eftir að hafa í millitíðinni spilað sem atvinnumaður á Spáni, Ítalíu, í Rúmeníu og Bretlandi, sem og með Haukum í hálft ár 2021. Í viðtalinu hér að neðan fer hún yfir ákvörðun sína, „hatur“ í garð KR og stefnuna sem nú hefur verið mörkuð hjá félaginu. Klippa: Sara Rún mætt til að vinna titla með KR „Ég fór á fund með stjórn og líst bara mjög vel á þetta. Flott lið, flottur þjálfari, geggjuð stjórn, geggjaður klúbbur, og þetta er bara eitthvað sem hreif mig frá fyrsta fundi. Ég er virkilega spennt fyrir að verða partur af þessu. Það eru flottir hlutir að gerast hérna. Það er eitthvað sem skiptir mig mjög miklu máli hvernig þeir styðja við kvennakörfuna. Það er eitthvað sem er í gangi núna og ég vil vera með,“ segir Sara. Hún sneri heim frá Spáni til Keflavíkur í janúar 2024 og varð bikarmeistari með liðinu tveimur mánuðum síðar, með sigri á lærimeyjum Daníels Andra Halldórssonar í Þór Akureyri en hann verður nú þjálfari Söru hjá KR. En af hverju kveður Sara nú og er hún ósátt við hvernig síðustu misseri hafa verið í Keflavík? „Alls ekki. Ég var ekkert ósátt. Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun og bera virðingu fyrir henni. Þetta er ferskt start sem er hollt fyrir alla. Það er frábært fólk í Keflavík og ég á eftir að sakna þeirra en ég er virkilega spennt fyrir næstu skrefum.“ Létt að hata KR utan frá Aðspurð hvort hún hafi alist upp við að hata KR svarar hún hlæjandi: „Neeeei… Það er kannski bara kalt á toppnum. Miðað við það stórveldi sem KR er þá er létt að hata það utan frá en ég er ánægð að vera komin inn. Það er eitthvað sem hreif mig frá fyrsta fundi að hér er markmiðið bara titlar og titlar, og ekkert annað. Það er eitthvað sem mig langar að taka þátt í. Það eru gríðarlega sterkir leikmenn í liðinu nú þegar. Ég held að þær geti hjálpað mér eins og ég get hjálpað þeim. Ég er spennt að taka slaginn með þeim,“ segir Sara. „Eiga þvílíka framtíð fyrir sér“ Á blaðamannafundi í dag var jafnframt tilkynnt að KR hefði endurheimt Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur og að hin 17 ára gamla landsliðskona Rebekka Rut Steingrímsdóttir hefði framlengt samning sinn um eitt ár. „Ég hef bara sagt fallega hluti um Rebekku síðan ég kynntist henni. Mér finnst hún æðisleg stelpa og þær Emma eiga þvílíka framtíð fyrir sér. Vinnuhestar, ef maður getur sagt það, og það er heiður að fá að spila með þeim í félagsliði,“ sagði Sara en viðtalið við hana má sjá hér að ofan.
KR Bónus-deild kvenna Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni Sjá meira