Körfubolti

Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skila­boð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chelsea Gray er frábær körfuboltakona og lykilleikmaður hjá Las Vegas Aces. Hún er með 12,3 stig og 7,4 stoðsendingar að meðaltali í WNBA á þessu tímabili.
Chelsea Gray er frábær körfuboltakona og lykilleikmaður hjá Las Vegas Aces. Hún er með 12,3 stig og 7,4 stoðsendingar að meðaltali í WNBA á þessu tímabili. Getty/Ethan Miller

Karlmaður sem er sagður hafa sent rasísk skilaboð til Chelsea Gray, bakvarðar Las Vegas Aces í WNBA-deildinni í körfubolta, á samfélagsmiðlum hefur verið rekinn af vinnuveitanda sínum.

Hilton Grand Vacations tilkynnti um uppsögnina í yfirlýsingu sem send var á marga fjölmiðla degi eftir að Gray birti skjáskot af skilaboðum til sín á Instagram-reikningi sínum þar sem hún var kölluð kynþáttaníðingur.

„Sá sem bar ábyrgð á að birta þessar upplýsingar starfar ekki lengur hjá fyrirtækinu. Hegðun hans braut í bága við margar reglur fyrirtækisins og endurspeglar á engan hátt gildi fyrirtækisins,“ sagði Hilton Grand Vacations í yfirlýsingu sinni.

Gray sagði í færslu sinni að hún hefði fengið skilaboðin eftir 109-75 tap Aces gegn Indiana Fever á sunnudag.

„Fólk lætur eins og við séum bara að búa þetta kjaftæði til og svo dirfskan að segja okkur íþróttafólkinu að ‚halda kjafti og dripla‘,“ skrifaði hún í færslu sinni.

Færsla Gray um skilaboðin kom tveimur vikum eftir að Alyssa Thomas, framherji Phoenix Mercury, sagðist hafa fengið líflátshótanir og verið kölluð kynþáttaníðingur í kjölfar eins leiks banns sem hún fékk eftir að hafa slegið Caitlin Clark í hálsinn í leik gegn Fever þann 24. júní.

Thomas gagnrýndi Cathy Engelbert, framkvæmdastjóra WNBA, fyrir að gera ekki meira til að vernda leikmenn deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×