Ebólan komin í metstærð á mettíma Samúel Karl Ólason skrifar 29. júlí 2026 10:04 Heilbrigðisstarfsmenn í Austur-Kongó í verkfalli mótmæla ógreiddum launum og slæmum aðbúnaði. AP/Constant Same Bagalwa Ekkert lát virðist á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Skráð tilfelli fóru í gær í 3.262 og er það næstum því til jafns við versta faraldurinn í landinu. Vitað er til þess að 1.437 hafa dáið vegna veirunnar en skráningar eru að öllum líkindum langt frá því að ná utan um raunverulega útbreiðslu veirunnar.
Árin 2018 til 2020 smituðust rúmlega 3.400 manns í Austur-Kongó og Úganda og rúmlega 2.200 dóu, svo vitað sé. Á árunum 2014 til 2016 átti sér þó stað töluvert umfangsmeiri faraldur í vestanverðri Afríku. Þá greindust um 28 þúsund manns og rúmlega ellefu þúsund dóu. Faraldurinn sem herjar nú á íbúa Austur-Kongó virðist í hraðri dreifingu og eru uppi miklar áhyggjur af því að ekki sé búið að ná utan um umfang hans. Heilbrigðisstarfsmenn hafa orðið fyrir árásum frá vígahópum í austurhluta Austur-Kongó og íbúum sem í mörgum tilfellum trúa ekki að veiran sé raunveruleg. Sjá einnig: Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri „Sú staðreynd að á einungis tíu vikum séum við komin í nærri því sama fjölda tilfella og yfir nærri því tveggja ára tímabil er uggandi og ætti að hræða okkur,“ hefur AP fréttaveitan eftir heilbrigðisstarfsmanni í Bunia í Austur-Kongó. Sú borg, sem er í austurhluta landsins, hefur verið þungamiðja faraldursins. „Það er ekki nokkur vafi á því að veira dreifist hraðar en við ráðum við.“ Reuters hefur eftir starfsmönnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að raunverulegt umfang faraldursins gæti verið tvisvar til fjórum sinnum stærra en skráningar benda til. Smitrakning gengur allt of hægt Auk þess að hafa orðið fyrir árásum og áreiti hefur heilbrigðisstarfsfólk í mörgum tilfellum ekki fengið greitt fyrir störf sín og hefur farið í verkföll. Blaðamenn Reuters fylgdu á dögunum eftir teymi sérfræðinga sem hafði það hlutverk að framkvæma smitrakningu og reyna að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Heilbrigðisstarfsmennirnir kvörtuðu meðal annars yfir því að á góðum dögum hefðu þeir aðgang að einungis fjórum bílum til að ferðast um svæðið kringum Bunia. Á hverri heilbrigðisstofnuninni á fætur annarri komust starfsmennirnir að því að þar hafði ekki verið haldið nægilega vel utan um upplýsingar um smitaða eða fólk sem talið var að hefði mögulega smitast. After losing 12 members of his family to Ebola, Justin Singo Nguma, a 40-year-old father of four from Bunia, made a life-saving decision; when he developed symptoms, he sought care immediately. Today, he is a survivor and an advocate in his community. “I am living proof that… pic.twitter.com/0MZyith63Q— World Health Organization (WHO) (@WHO) July 28, 2026 Á einni starfsstöð lágu tvö ung börn sem þjáðust af háum hita og beinverkjum. Móðir þeirra neitaði að leyfa heilbrigðisstarfsfólki að taka sýni úr þeim og staðfesta ebólusmit, þar sem hún trúði ekki að þau börnin væru smituð. Aðrir starfsmenn á framlínunni töluðu um að niðurstöður sýnagreininga skiluðu sér allt of seint og að margir neituðu að gefa sýni. Smitrakning hefur þess vegna reynst gífurlega erfið. Þetta sé meðal ástæðna fyrir því að forvarnir skili litlum sem engum árangri, þar sem heilbrigðisstarfsmenn verji tíma sínum í að elta veiruna, í stað þess að verjast henni eða fyrirbyggja dreifingu hennar. Hættulegasta afbrigðið í dreifingu Þetta er sautjándi faraldurinn í Austur-Kongó síðan ebóla greindist fyrst þar árið 1976. Talið er að veikin hafi fyrst borist í menn úr leðurblökum og er áætlað að um fimmtán þúsund manns hafi dáið í Afríku vegna ebólu á undanförnum fimmtíu árum. Síðasta faraldri í Austur-Kongó lauk formlega í maí 2021. Þrjár mismunandi veirur valda ebólu og dreifast þær manna á milli með líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra. Til er bóluefni gegn einungis einni af veirunum sem valda ebólu. Þessi faraldur er vegna dreifingar Bundibugyo-veirunnar en ekkert bóluefni er til við henni, né meðferðarúrræði. Hún er bæði sú sjaldgæfasta af veirunum þremur sem valda ebólu og sú hættulegasta. Hún hefur einungis tvisvar sinnum áður verið í dreifingu, svo vitað sé. Það var í Úganda árið 2007 og Austur-Kongó árið 2012. Yfirstandandi faraldur teygði einnig anga sína til Úganda en útlit er fyrir að útbreiðslan þar hafi verið stöðvuð.
Austur-Kongó Ebóla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira