Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Andri Broddason skrifar 31. júlí 2026 14:01 Kylfingurinn Charley Hull sýndi blaðamönnum myndband sem hún tók af hrekk sem hún gerði við kylfusveininn sinn. Richard Heathcote/Getty Images Charley Hull lék fyrsta hringinn á Opna breska risamótinu í golfi á tveimur höggum undir pari. Hún vakti þó athygli á hrekk sem hún gerði við kylfusveininn sinn fyrir mótið.
Enski kylfingurinn Charley Hull lék gott golf á fyrsta hring Opna breska risamótsins í golfi sem stendur yfir nú um helgina. Eftir fyrsta hringinn var hún á tveimur höggum undir pari sem skilaði henni í áttunda sæti. Í viðtali fyrir keppnina sagði hún frá hrekk sem hún gerði við kylfusveininn sinn, Adam Woodward. Þar segir hún frá því að hún hafi keypt platlottómiða og gaf kylfusveininum sínum þá. Woodward hélt að hann hefði unnið 100 þúsund dollara og hoppað í kringum svæðið kampakátur. Charley Hull bought a fake lottery ticket in Blackpool last night and tricked her caddie into thinking he'd won $100,000!"He's taken his hat off. He's taken his glasses off. He's literally running around the players lounge sayin', 'I've won $100,000. I'm taking today off.' His… pic.twitter.com/boZ2csdAGO— Beth Ann Nichols (@GolfweekNichols) July 28, 2026 Eftir ofsagleði Woodwards þurfti Hull að viðurkenna fyrir honum að miðinn væri ekki í alvöru og hann hefði í rauninni ekki unnið neitt. Kylfusveinninn var ekki glaður eftir að hafa frétt það og hótaði að hætta sem kylfusveinn Hull. Eftir að Hull sagði frá hrekknum hefur hún sætt gagnrýni þar sem fólki fannst hrekkurinn vera grimmur. Hull lét það þó lítið á sig fá og bað fólk einfaldlega um að horfa á björtu hliðarnar á þessu. „Ég myndi 100 prósent gera eitthvað svipað aftur. Honum [Woodward] sjálfum fannst þetta fyndið eftir á. Mér leið smá illa fyrir hans hönd en ég ætla að gefa honum alvöru lottómiða eftir mótið.“ View this post on Instagram A post shared by Sky Sports Golf (@skysportsgolf)
Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira