Viðskipti innlent

Fram­kvæmda­stjórinn heldur frí­dag verslunar­manna heilagan

Freyja Þórisdóttir skrifar
Bónusbúðir voru lokaðar í dag, á frídegi verslunarmanna.
Bónusbúðir voru lokaðar í dag, á frídegi verslunarmanna. Vísir/Lýður Valberg/Vilhelm

Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus birti í dag færslu þar sem hann ítrekar mikilvægi frídags verslunarmanna. Þá veltir hann upp spurningunni hvort það megi ekki gera þetta að venju aftur en Bónus var eina verslunarkeðjan þar sem allar verslanir voru lokaðar í dag, 3. ágúst.

Bónus-verslanir eru alls tuttugu á höfuðborgarsvæðinu en þær eru þrettán talsins sem eru staðsettar á landsbyggðinni og þar á meðal eru verslanir á Egilsstöðum, í Reykjanesbæ og á Ísafirði. Opnunartíminn er mismunandi eftir stað en allar þrjátíu og þrjár verslanirnar voru lokaðar í dag, þann 3. ágúst.

Í færslu sem Björgvin birti á Linkedin segir hann Bónus halda frídag verslunarmanna heilagan sem og áður.

„Fyrir mér er þetta dagur sem er tileinkaður öllu flotta starfsfólkinu í Bónus sem stendur venjulega vaktina. Í dag fögnum við ykkur!“

Þá opna búðirnar aftur í fyrramálið, þriðjudaginn 4. ágúst, um allt land en Björgvin spyr hvort „þetta megi ekki verða „normið“ aftur?“ og á þá væntanlega við að loka verslunum á þessum hátíðardegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×