United ekki lengi þjálfaralaust Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. ágúst 2026 22:47 Eva Olid er næsti stjóri Manchester United. Malcolm Mackenzie/Getty Images Manchester United virðist vera búið að ganga frá samkomulagi við nýjan þjálfara kvennaliðsins, aðeins rúmum sólarhring eftir að Marc Skinner sagði starfi sínu lausu.
Skinner hætti í gær eftir fimm ár við stjórnvölinn hjá Manchester United vegna ágreinings við stjórnarmenn félagsins. Skinner vildi sjá meiri metnað á leikmannamarkaðnum en stjórnin vill efla ungmennastarf félagsins frekar. Nú greina allir áreiðanlegustu miðlar Bretlands frá því að Eva Olid taki við starfinu. Spánverjinn gerði Hearts að Skotlandsmeisturum á síðasta tímabili, eftir mikla dramatík í lokaumferðinni. Hearts komst einnig í úrslitaleik bikarkeppninnar árið 2024 undir hennar stjórn en Olid var hjá félaginu í fimm ár. Stjórnarmenn United eru sagðir hafa unnið mikla rannsóknarvinnu áður en tilkynnt var formlega um starfslok Skinner í gær. Niðurstaða þeirrar vinnu var Olid og talið er að hún sé hæfasti kosturinn í uppbygginarstarfið sem framundan er. Búist er við því að hún verði kynnt sem nýr knattspyrnustjóri Manchester United á morgun. United varð í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og hefur nýtt tímabil þann 4. september gegn stórskotaliði London City Lionesses.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Fleiri fréttir Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Sjá meira