Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Aron Guðmundsson skrifar 13. ágúst 2026 15:01 Lewis Skelly vann sér inn sæti í byrjunarliði Arsenal á seinni hluta síðasta tímabils. Hann byrjaði meðal annars úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Paris Saint-Germain og er klár í að berjast fyrir sæti sínu á komandi tímabili Vísir/Getty Myles Lewis-Skelly, 19 ára leikmaður Englandsmeistara Arsenal hefur engan áhuga á því að yfirgefa uppeldisfélag sitt nú þegar hann er orðaður við lið á borð við Manchester United og Chelsea.
Það er The Athletic sem greinir frá þessu í dag og hefur eftir heimildarmönnum sínum sem þekkja vel til Lewis-Skelly að hann vilji vera áfram í herbúðum Arsenal og berjast fyrir sæti sínu. Lewis-Skelly mátti þola mikla bekkjarsetu framan af síðasta tímabili en þegar leið á vann hann sér inn sæti í liði Englandsmeistaranna og var undir lokin orðinn einn af fyrstu kostum Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, á miðjunni. Undanfarna daga hafa farið af stað orðrómar um að Lewis-Skelly gæti verið á förum til Chelsea eða Manchester United eftir að Arsenal keypti Bruno Guimaraes frá Newcastle United en Lewis-Skelly vill berjast fyrir sæti sínu hjá Arsenal fremur en að róa á önnur mið. Lewis-Skelly er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leyst stöðu bakvarðar og miðjumanns og hefur verið á mála hjá Arsenal síðan hann var átta ára gamall. „Innkoma Guimaraes í leikmannahóp Arsenal hefur ekki dregið úr vilja Lewis-Skelly. Nú þegar, á sínum stutta ferli, hefur hann sýnt fram á vilja og getu til þess að berjast fyrir sæti sínu í samkeppni við reyndari leikmenn,“ segir í grein The Athletic. Lewis-Skelly skrifaði undir nýjan langtímasamning við Arsenal á síðasta ári. „Aðeins 19 ára gamall áttar Lewis-Skelly sig á því að hann er enn að þróast sem leikmaður og trúir því að með því að vera í svona miklu samkeppnisumhverfi muni hann taka enn frekari framförum.“
Arsenal FC Chelsea FC Manchester United Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Fleiri fréttir Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Sjá meira