Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Lovísa Arnardóttir skrifar 21. ágúst 2026 10:01 Þorgeir var sveitarstjóri í Strandabyggð í sjö ár. Aðsend Þorgeir Pálsson hefur verið ráðinn í stöðu mannauðsstjóra hjá Háskólanum á Bifröst. Hann mun einnig gegna starfi sérfræðings á stjórnsýslusviði auk þess sem hann tekur sæti í framkvæmdastjórn háskólans.
Þorgeir er búsettur á Hólmavík ásamt fjölskyldu sinni en hann var áður sveitarstjóri Strandabyggðar í sjö ár og fyrir það framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. „Það gleður okkur að hafa fengið Þorgeir í stöðu mannauðsstjóra Háskólans á Bifröst og við teljum að reynsla hans og þekking á stjórnunarstörfum og störfum á alþjóðlegum vettvangi muni reynast okkur dýrmæt viðbót í okkar fjölbreytta hóp starfsfólks. Við bjóðum Þorgeir velkominn til starfa,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst. Í tilkynningu kemur fram að Þorgeir er rekstrarhagfræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þá er hann með diplóma í alþjóðaviðskiptum frá Bedriftsökonomisk Institutt, Skedsmo/Oslo í Noregi og BSc-gráðu frá Nordland University, Bodø, Noregi. Ráðgjafi og kennari Einnig kemur fram að hann hafi unnið sem stjórnunar- og stefnumótunarráðgjafi og unnið að innleiðingarverkefnum hjá fyrirtækjum og stofnunum, svo sem hjá Samskipum, Saga film, Iceland Seafood International, Lánasýslu ríkisins og fleirum. Hann hefur kennt við háskóla á Íslandi í um 30 ár og þá aðallega kennt alþjóðaviðskipti en einnig verkefnastjórnun, stefnumótun og markaðsfræði. Eins hefur hann kennt við Comenius-háskólann í Bratislava í Slóvakíu og við Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Háskólar Vistaskipti Borgarbyggð Tengdar fréttir Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hún tók til starfa í byrjun ágústmánaðar og starfar fyrstu vikurnar samhliða Erni Pálssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, til að tryggja farsæla yfirfærslu þekkingar og verkefna. 18. ágúst 2026 10:49 Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Rakel Heiðmarsdóttir er nýr deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Deildin var miðpunktur harðra deilna innan veggja skólans í vetur sem enduðu með því að þáverandi rektor lét af störfum. 17. ágúst 2026 11:26 Tveimur sagt upp á Bifröst Tveimur var sagt upp í gær á stoðsviði og stjórnsýslusviði Háskólans á Bifröst. Um hagræðingaraðgerðir er að ræða en rektor á ekki von á frekari uppsögnum í ár. Í haust hefst fjölmennasta önn skólans frá upphafi. 1. júlí 2026 11:46 Mest lesið „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira
Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hún tók til starfa í byrjun ágústmánaðar og starfar fyrstu vikurnar samhliða Erni Pálssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, til að tryggja farsæla yfirfærslu þekkingar og verkefna. 18. ágúst 2026 10:49
Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Rakel Heiðmarsdóttir er nýr deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Deildin var miðpunktur harðra deilna innan veggja skólans í vetur sem enduðu með því að þáverandi rektor lét af störfum. 17. ágúst 2026 11:26
Tveimur sagt upp á Bifröst Tveimur var sagt upp í gær á stoðsviði og stjórnsýslusviði Háskólans á Bifröst. Um hagræðingaraðgerðir er að ræða en rektor á ekki von á frekari uppsögnum í ár. Í haust hefst fjölmennasta önn skólans frá upphafi. 1. júlí 2026 11:46