Enski boltinn

Cody Gakpo orðaður við Manchester City

Andri Broddason skrifar
Cody Gakpo hefur verið einn helsti framherji Liverpool síðan hann gekk til félagsins.
Cody Gakpo hefur verið einn helsti framherji Liverpool síðan hann gekk til félagsins. Liverpool FC/Getty Images

Manchester City hefur áhuga á því að fá Cody Gakpo frá Liverpool. Gakpo skrifaði undir nýjan samning fyrir ári sem gildir til 2030.

The Athletic greinir frá því að Manchester City hafi áhuga á hollenska leikmanninum. Hann hefur mikið verið orðaður við Tottenham í sumar en ekkert hefur orðið að því ennþá. Liverpool virðist ekki vilja losa sig við Gakpo enda byrjaði hann í fyrsta deildarleiknum gegn Newcastle.

Manchester City er búið að vera duglegt að sækja sér leikmenn í sumar þar sem þrír leikmenn eru nú þegar komnir en fleiri eru á leiðinni. Mögulega mun Gakpo bætast við þá leikmenn sem eru á leiðinni.

Stígandi hjá Gakpo

Gakpo átti frábært tímabil hjá Liverpool 2024-25 en þá skoraði hann átján mörk ásamt því að leggja upp sjö þegar Liverpool varð síðast Englandsmeistari. Hann náði þó ekki alveg að halda sama dampi á síðasta tímabili þar sem hann skoraði aðeins níu mörk.

Gengi Gakpo virðist þó vera að batna þar sem hann skoraði þrjú mörk á heimsmeistaramótinu í sumar fyrir Holland og skoraði í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni.

Það væri gríðarlegt högg fyrir Liverpool ef Gakpo myndi fara frá félaginu og þyrfti félagið að fá einhvern annan í staðinn. Bradley Barcola, leikmaður PSG, hefur mikið verið orðaður við Liverpool í sumar og gæti hann komið í stað Gakpo.

Ef Manchester City ætlar að kaupa Cody Gakpo þarf félagið að búast við að borga meira en 75 milljónir punda fyrir leikmanninn. Hann er mikilvægur fyrir Liverpool og á mikið eftir af samningnum sínum. Auk þess væri hann að fara til keppinauta sem myndi gera það að verkum að hann yrði enn dýrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×