Viðskipti innlent

Hafa sam­band við far­þega

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Lýður

Icelandair segir að komi til verkfallsaðgerða flugvirkja muni það hafa veruleg áhrif á flugáætlun félagsins þó að ekki sé hægt að meta umfang mögulegra fjárhagslegra áhrifa verkfallsins á félagið. Komi til breytinga á flugáætlun muni starfsmenn félagsins hafa samband við farþega. Ítrekað hafi það verið lagt til að leggja málið fyrir gerðardóm.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Icelandair vegna ótímabundins allsherjarverkfalls sem flugvirkjar félagsins hafa samþykkt að hefja eftir níu daga. 

„Icelandair hefur lagt fram sanngjarnt og ábyrgt samningstilboð. Það er þó ljóst að aðila greinir verulega á um launaliðinn og hefur samninganefnd Icelandair því ítrekað lagt til við samninganefnd Flugvirkjafélagsins að fenginn verði óháður aðili til að skera úr um það ágreiningsmál, það er að aðilar ákveði í sameiningu að leggja málið fyrir samningsbundinn gerðardóm,“ segir í yfirlýsingunni. 

Unnið sé að því að meta áhrifin sem verkfallið kann að hafa á farþega. Komi til þess að félagið þurfi að breyta flugáætlun sinni verði haft samband við farþega. 

„Félagið hvetur farþega til að tryggja að réttar tengiliðaupplýsingar séu skráðar inn í bókun, í gegnum vefsíðu félagsins eða Icelandair appið,“ segir í yfirlýsingunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×