Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Boði Logason skrifar 1. október 2026 06:00 Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi hafa haldið úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins í að verða fimm ár. Elva Þrastardóttir Aðdáendur hlaðvarpsþáttana Eftirmála eiga von á góðu en stjórnendurnir Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir hafa sett í loftið nýja áskriftarþætti sem heita Önnur mál.
Hlaðvarpsþættirnir Eftirmál komu fyrst út í mars árið 2022 og er eitt allra vinsælasta hlaðvarp landsins með tugþúsundir hlustana á hvern þátt. Hlustanir frá upphafi eru meira en ein og hálf milljón. „Önnur mál verða persónulegri þættir þar sem við tölum um þau mál sem við höfum áhuga á en hafa ekki beint passað inn í Eftirmál. Við ætlum líka að fjalla um alls konar málefni líðandi stundar, t.d. stór frétta- og sakamál og ræða þau á mannamáli,“ segir Þórhildur í samtali við Vísi. Hægt er að kaupa áskrift á eftirmal.is Önnur mál verður áskriftarþáttur og er fyrsti þáttur kominn í loftið.Elva Þrastardóttir Nýju þættirnir koma út tvisvar í mánuði og verða í anda Eftirmála. „Við munum líka birta aukaefni og fjalla um ýmsar hliðar mála sem við komum kannski ekki í Eftirmál - eða ef að það verða vendingar í málunum eftir að þættirnir koma út, einhverjar upplýsingar sem við viljum koma til hlustenda. Okkur hefur líka lengi langað að taka viðtöl við áhugavert fólk sem hefur sögur að segja sem kannski ekki allir þekkja og eru ekki týpísk fréttamál. Við erum með langan lista af viðmælendum sem við hlökkum til að spjalla við í Öðrum málum.“ Samhliða útgáfu þáttanna Önnur mál munu þær halda áfram útgáfu Eftirmála aðra hverja viku. „Við höfum hingað til sinnt hlaðvarpinu í okkar frítíma og dundað okkur við að taka upp þætti þegar tækifæri gefst en við höfum alltaf fengið mikla hvatningu frá hlustendum að gefa út meira efni. Okkur finnst þetta vera rétti tíminn til að stækka konseptið. Við erum báðar að klára fæðingarorlof og ákváðum þá að keyra bara almennilega á þetta og byrja að gefa út efni reglulega - þetta er það skemmtilegasta sem við gerum,“ segir Þórhildur. Hægt er að hlusta á alla þætti Eftirmála og nýju þættina, Önnur mál, á hlaðvarpssíðu Tals.
Hlaðvörp Eftirmál Mest lesið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Sjá meira