Körfubolti

Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum

Andri Broddason skrifar
Kristinn Pálsson hefur byrjað tímabilið vel með Alicante.
Kristinn Pálsson hefur byrjað tímabilið vel með Alicante. Vísir/Lýður Valberg

Íslendingarnir Kristinn Pálsson og Jón Axel Guðmundsson mættust í Íslendingaslag í spænsku B-deildinni í körfubolta. Kristinn og félagar í Alicante höfðu betur 84-74 en leikurinn var gríðarlega jafn.

Fyrstu tveir leikhlutar leiksins voru jafnir og var staðan 41-41 í hálfleik. Það var þó aðeins annað liðið sem mætti til leiks í seinni hálfleikinn. 

Lið Gran Canaria virtist vera sofandi í þriðja leikhluta og náðu heimamenn í Alicante að byggja sér fínt forskot. Gestirnir þurftu því að mæta með mikilli grimmd í síðasta leikhlutann ef liðið ætlaði að sækja úrslit.

Gestirnir náðu ekki að vinna upp forskotið og þvert á móti náði lið Alicante að stækka það. Leikurinn endaði því með sigri Alicante, 84-74, og varð þetta fyrsti tapleikur Gran Canaria á tímabilinu.

Kristinn Pálsson spilaði í sautján mínútur fyrir Alicante og náði á þeim tíma að skora fimm stig. Ásamt því náði hann að stela boltanum einu sinni sem reyndist mikilvægt fyrir liðið. Jón Axel spilaði í 20 mínútur fyrir Gran Canaria og náði að skora níu stig. Ásamt því tók hann tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×