Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 15. október 2026 08:37 Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir undirstöður atvinnulífsins og hagkerfisins í heild sinni sterkar þrátt fyrir ákveðna tímabundna erfiðleika núna. Háir vextir, þrálát verðbólga og minnkandi eftirspurn reyna á íslensk fyrirtæki. Rekstrarumhverfið hefur reynst erfiðara en vonir stóðu til og boðaðar skattahækkanir bæta við áskoranirnar. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir undirstöður hagkerfisins þó sterkar og vaxtatækifæri til staðar, meðal annars í fiskeldi og gagnaverum.
Það er ekki sjálfgefið að ná góðum árangri í rekstri þegar fjármögnun er dýr, kostnaður hækkar og viðskiptavinir halda fastar um budduna. Í tengslum við umfjöllun um Framúrskarandi fyrirtæki er því tilefni til að skoða hvaða brekkur íslensk fyrirtæki hafa þurft að klífa á árinu og hvað bíður þeirra á næstu misserum. Eru erfiðleikarnir tímabundnir eða þurfa stjórnendur að búa sig undir áframhaldandi mótvind? Erfiðlega gengið að ná niður verðbólgu og vöxtum Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir háa verðbólgu og vexti helstu áskoranir fyrirtækja undanfarið ár. Alþjóðleg óvissa geri þeim jafnframt erfiðara að skipuleggja reksturinn og horfa fram á veginn. „Þrálát há verðbólga og óvissa í alþjóðamálum, sérstaklega tengd átökum í Miðausturlöndum og áhrifum sem þau hafa haft á olíuverð, draga úr fyrirsjáanleika í rekstri fyrirtækja. Samhliða þessu fer hagkerfið kólnandi og umsvif almennt að dragast saman,“ segir Ragnar. Vonir um að rekstrarumhverfið yrði viðráðanlegra á árinu hafa ekki gengið eftir að mati Ragnars. Það sem hafi helst komið á óvart sé hversu erfiðlega hefur gengið að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Verðbólgan hefur farið hækkandi og hefur ekki verið hærri í tvö ár. Samhliða því hafa stýrivextir hækkað þrisvar sinnum á árinu og standa nú í átta prósentum. Há verðbólga, háir vextir og lítill hagvöxtur, líkt og horfir fram á, eru mjög slæm blanda fyrir hagkerfið.“ Áhrifin takmarkist ekki við einstakar atvinnugreinar heldur komi fram þvert á fyrirtæki. Viðskiptavinir hafi minna svigrúm, fjárfestingar verði dýrari og óvissan meiri. „Kaupmáttur viðskiptavinanna minnkar, fjárfestingar verða dýrari og meiri óvissa ríkir um efnahagsþróun,“ segir Ragnar. Vaxtaaðhaldinu sé ætlað að hægja á hagkerfinu og áhrif þess séu farin að sjást á vinnumarkaði. „Við erum nú þegar farin að sjá aukningu í atvinnuleysi og fækkun starfa.“ Heimilin halda meira að sér höndum Hvað með neytendur? Erum við farin að breyta kauphegðun okkar? Ragnar segir merki um að heimilin haldi meira að sér höndum og eftirspurn innanlands sé að gefa eftir. Hann bendir á að Landsbankinn hafi í nýlegri útgáfu sinni fjallað um að einkaneysla hefði aukist minna á öðrum ársfjórðungi en þeim fyrsta og fært niður spá sína um vöxt hennar. „Þá dróst innlend kortavelta jafnframt saman í ágúst og ekki hafði mælst jafn mikill samdráttur síðan á síðari hluta ársins 2023. Hvoru tveggja bendir til þess að hægt hafi á eftirspurn eftir vörum og þjónustu innanlands, sem þýðir að heimilin eru farin að halda að sér höndum í auknum mæli.“ Þessi þróun sé sérstaklega sýnileg í einni atvinnugrein. „Skýrustu merkin um samdrátt hafa verið í byggingargeiranum, þar sem atvinnuleysi hefur farið vaxandi undanfarið ár.“ Þótt víða sé þungur róður er myndin þó ekki einsleit. Á sama tíma og sumar greinar finna fyrir samdrætti eru aðrar í vexti. „Það stefnir í metár í útflutningi frá fiskeldi hér á landi, svo sá iðnaður er áfram í hröðum vexti. Jafnframt hefur verið mikill vöxtur í uppbyggingu gagnavera hér á landi undanfarið ár, sem sést meðal annars í miklum innflutningi á tækjum fyrir slíkan iðnað.“ Samkeppnisstaðan hefur veikst Íslensk fyrirtæki þurfa ekki aðeins að takast á við aðstæður heima fyrir. Mörg keppa við erlend fyrirtæki og þar segir Ragnar mælingar benda til þess að staða Íslands hafi veikst. „Ísland féll um sjö sæti í samkeppnishæfniúttekt IMD-háskólans og situr nú í 22. sæti af 70 þátttökuríkjum. Laun hafa hækkað hraðar en í samkeppnislöndum, verðbólga verið hærri og hagvöxtur lítill.“ Sterk króna og boðaðar skattahækkanir bæti þar ekki úr. „Samhliða þessu er krónan sterk og skattahækkanir boðaðar á okkar helstu útflutningsgrein, ferðaþjónustuna, sem er ekki til þess fallið að styrkja samkeppnishæfni landsins.“ Átök erlendis hafi líka áhrif hér heima, þótt Ísland sé fjarri átakasvæðunum. Ragnar segir peningastefnunefnd hafa bent á að aukin verðbólga skýrist einkum af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Miðausturlöndum. „Átök og óvissa sem þeim fylgja hafa komið fram í hækkun á olíu- og flutningsverði, sem á endanum hefur áhrif á verðlag í hagkerfinu í heild sinni.“ Skattahækkanir bætast við áskoranirnar Horft til næstu tólf mánaða telur Ragnar að vextir og verðbólga verði áfram stór áskorun í rekstri, að minnsta kosti eitthvað inn í næsta ár. Minnkandi eftirspurn og vaxandi atvinnuleysi geti jafnframt reynst fyrirtækjum erfitt viðfangsefni. „Jafnframt er nauðsynlegt að nefna þær skattahækkanir sem hafa verið boðaðar. Hærri bankaskattur, ný gjaldtaka á ferðaþjónustu, hærri virðisaukaskattur á baðlón og lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði úr 35 prósentum í 20 prósent munu allt valda auknum áskorunum í rekstri fyrirtækja.“ Hvað þarf þá að gerast til að róðurinn verði léttari? Ragnar segir mestu skipta að ná verðbólgunni niður svo vextir geti lækkað. Þar gegni ríkisfjármálin lykilhlutverki. „Við fögnum því að í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 sé stefnt að því að ríkissjóður verði rekinn án halla í fyrsta sinn frá árinu 2018. Við hefðum viljað sjá ríkið ráðast í ákveðnara aðhald í útgjöldum í stað skattahækkana.“ Viðskiptaráð hafi lagt fram tillögur sem miði að því að ná fram slíkum árangri. „Í því samhengi lagði Viðskiptaráð fram 46 tillögur að hagræðingu í ríkisrekstri sem gætu skilað 110 milljörðum króna. Auk þess þarf að einfalda regluverk og liðka fyrir orkuöflun.“ Ástæða til bjartsýni þrátt fyrir mótvind Þótt áskoranirnar séu margar telur Ragnar ekki ástæðu til að missa trúna á íslenskt atvinnulíf. Sterk staða heimila og bankakerfisins skipti máli þegar hagkerfið kólnar og fyrirtæki þurfa að takast á við erfiðari aðstæður. „Þrátt fyrir ákveðna tímabundna erfiðleika núna eru undirstöður atvinnulífsins og hagkerfisins í heild sinni sterkar. Heimilin eru lítið skuldsett og bankakerfið stendur traust.“ Þá geti þróun verðbólgunnar á næsta ári skapað svigrúm til breytinga sem fyrirtæki og heimili bíði eftir. „Seðlabankinn telur að flest bendi til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári og þá skapast svigrúm til vaxtalækkana. Þá eru jafnframt mikil vaxtatækifæri í gagnaverum og fiskeldi.“ Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Framúrskarandi fyrirtæki Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent