Enski boltinn

„Guð morning!“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen fagnar öðru marka sinna um helgina.
Andri Lucas Guðjohnsen fagnar öðru marka sinna um helgina. Getty/Lee Parker

Enska fótboltafélagið Blackburn Rovers bauð upp á skemmtilegan orðaleik á miðlum sínum sem segir mikið um hug stuðningsmanna félagsins til íslenska framherjans Andra Lucasar Guðjohnsen.

Andri Lucas er sjóðandi heitur þessa dagana enda búinn að skora fjögur mörk í síðustu tveimur deildarleikjum sínum.þ

Miðlar Rovers birtu samsetta mynd af Andra að skora og fagna öðru marka sinna í 2-0 sigri á Wrexham í gær. Textinn er stuttur orðaleikur eða bara „Guð morning!“ sem er útgáfa „Good morning“ eða „Góðan daginn“ á íslensku.

Hér fyrir neðan má sjá þessa færslu en enn neðar má síðan sjá myndband af mörkunum hans Andra sem hann skoraði með bæði vinstri og hægri fæti.

Andri Lucas er nú næstmarkahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar með átta mörk í ellefu leikjum en hann hefur aðeins átta sinnum verið í byrjunarliðinu.

Hann skoraði tvö mörk um helgina í 2-0 sigri en var einnig með tvö mörk á móti West Brom helgina á undan.

Í síðustu fjórum leikjum hefur Andri skorað fimm af sjö mörkum Blackburn-liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×