Áskorun

Þetta er undar­legt…: Að hágrenja yfir lauknum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Finnst þér ekkert undarlegt að hágrenja þegar þú skerð lauk en ekki hvítlauk?
Finnst þér ekkert undarlegt að hágrenja þegar þú skerð lauk en ekki hvítlauk? Vísir/Getty

Laukurinn hefur aldrei gert neinum neitt. Samt stöndum við grátandi yfir honum í eldhúsinu eins og við séum að kveðja gamlan vin.

Finnst ykkur það ekkert undarlegt?

Er þetta kannski bara varnarbúnaður – því laukurinn vill ekki láta éta sig?

Þetta er undarlegt... er léttur afþreyingarpistill á laugardögum. 

Þetta er undarlegt... pistillinn er til gamans fyrir okkur venjulega fólkið. 

(Of gáfaða fólkið veit hins vegar eflaust betur og meira).

Fólk leitar alls kyns leiða til að grenja ekki yfir lauknum.Vísir/Getty

Sko… smá efnafræðiskýring á mannamáli:

Í frumum lauksins liggja brennisteinssambönd og ensím hlið við hlið, en vandlega aðskilin, eins og tveir ósáttir ættingjar í fermingarveislu.

Á meðan laukurinn er heill gerist ekkert. En um leið og hnífurinn sker í hann rofna veggirnir, allir hittast og allt fer í háaloft.

Úr verður lofttegund með nafni sem enginn getur borið fram: syn-própanþíal-S-oxíð. Hún stígur upp af skurðarbrettinu og stefnir beint í augun á kokkinum. Þar ertir hún taugaendana í hornhimnunni og líkaminn gerir það eina sem honum dettur í hug: að skola. Og skola. Og skola.

Sumsé: Við förum að grenja.

Það var samt ekki fyrr en árið 2002 sem japanskir vísindamenn fundu sérstakt ensím sem ber ábyrgð á tárunum. Fyrir það fengu þeir Ig Nóbel-verðlaunin, skopverðlaun fyrir rannsóknir sem fá fólk fyrst til að hlæja og svo til að hugsa.

Í leiðinni fannst skýringin á því hvers vegna hvítlaukur grætir engan: hann hefur ekki þetta ensím.

Viltu sleppa við grátinn?

Kældu laukinn í ísskápnum áður en þú skerð hann, þá gufar efnið síður upp. Notaðu beittan hníf, því bitlaus hnífur merur fleiri frumur. Og skerðu undir eldhúsviftunni.

Eða bara gráta. Það er ódýrara en sálfræðingur.


Tengdar fréttir

Hvað veistu um… pitsur?

Pitsa, eða pizza, er einn vinsælasti réttur heims og á uppruna sinn á Ítalíu þar sem nútímapizzan tók á sig mynd á 18. og 19. öld.

Hvað veistu um… Nylon?

Nylon var íslensk stúlknasveit sem sló rækilega í gegn á Íslandi eftir að hún var stofnuð árið 2004. Sveitin varð fljótt ein sú vinsælasta í íslensku popplífi, gaf út fjölda vinsælla laga og naut mikilla vinsælda, sérstaklega meðal yngri hlustenda.

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin?

Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi.

Hvað veistu um... Pólland?

Pólland er í hópi stærri og fjölmennari ríkja Evrópu, þekkt fyrir sögu sína, fallegar borgir og sterka menningarhefð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.