Hafnar ásökunum um kosningasvindl Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2026 13:59 Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur haldið því fram að mikil kjörsókn meðal Palestínumanna í Ísrael og annarra ísraelskra araba sé samsæri og svindl hafi átt sér stað. Því hafnar formaður yfirkjörstjórnar landsins alfarið. AP/Ohad Zwigenberg Formaður yfirkjörstjórnar Ísrael hafnar ásökunum um að umfangsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað í kosningunum á þriðjudaginn. Hann segir ásakanirnar grunnlausar og að ekkert bendi til svindls eða þess að kerfisbundin frávik hafi átt sér stað.
Útlit er fyrir að þrátefli muni myndast aftur í ísraelskum stjórnmálum. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvort þurfa stuðning stjórnarandstöðuflokks eða flokka eða starfa með flokkum ísraelskra araba, sem er hæpið. Stjórnarandstaðan er í sömu stöðu, þar sem hvorug fylking fékk nægilega mörg þingsæti til að mynda meirihluta. Fyrir kjörtímabilið sem er nú að ljúka þurftu Ísraelar að halda fimm kosningar á fjórum árum vegna langavarandi þráteflis. Til að mynda ríkisstjórn þarf að minnsta kosti 61 þingmann. Eins og staðan er núna, þegar langflest atkvæði hafa verið talin fá stjórnarflokkarnir saman 53 þingsæti af 120 og stjórnarandstaðan 48 sæti. Tveir flokkar ísraelskra araba fá saman 19 sæti. Ísraelskir arabar eru rúmur fimmtungur ísraelsku þjóðarinnar. Þar er um að ræða marga Palestínumenn með ísraelskan ríkisborgararétt, sem er langstærsti hópurinn, en einnig Drúsa, Bedúína og aðra hópa. Mikil kjörsókn sögð samsæri Netanjahú og félagar hafa haldið því fram að umfangsmikil svik hafi átt sér stað og að utanaðkomandi aðilar hafi haft afskipti af kosningunum. Kjörstjórnin hefur beðið um að þessar ásakanir verði rannsakaðar. Eins og fram kemur í grein AP-fréttaveitunnar hefur Netanjahú notað þá beiðni um rannsókn á ásökunum sínum til að halda því fram að þær séu sannar. Hann hefur kallað eftir því að enginn stjórnmálaflokkar starfi með flokkum araba, á grunni þessarar rannsóknar. Í beiðni kjörstjórnarinnar um rannsókn er ekkert talað um flokka ísraelskra araba. Ásakanir Netanjahús og félaga beinast þó að yfirvöldum í Katar og snúast um einstaklega mikla kjörsókn ísraelskra araba, sem Netanjahú hefur gefið til kynna að gæti verið eitthvert samsæri. Þá hefur einnig verið umræða um Tyrkland og yfirvöld þar hafa einnig hafnað ásökunum um afskipti. Dean Livne, starfandi formaður yfirkjörstjórnar Ísrael, segir að ásakanir um svindl eigi ekki við rök að styðjast, eftir því sem best sé vitað. Hann segir að áðurnefnd beiðni um rannsókn snúi að leynilegum upplýsingum sem þurfi að skoða nánar en hafi ekki enn verið sannreyndar, samkvæmt frétt Times of Israel. „Þingkosningarnar voru framkvæmdar með löglegum hætti.“ Sameinaði listinn vill Netanjahú burt Stjórnarandstaðan hefur sakað forsætisráðherrann um að reyna að gera Grýlu úr aröbum. Ráðamenn í Katar hafa gefið út yfirlýsingu þar sem þeir harðneita að hafa skipt sér með nokkrum hætti af kosningunum í Ísrael. Þá hafa leiðtogar Sameinaða listans svokallaða, sem er stærri listi ísraelskra araba af tveimur, sakað forsætisráðherrann um að reyna að stela kosningunum. Þeir kalla eftir því að aðrir stjórnmálaleiðtogar hafni ásökunum Netanjahús og sömuleiðis hatursáróðri hans í garð arabískra kjósenda. „Við höfum fengið nóg af því að afsaka okkur og verjast ógeðslegum lygum og grunnlausum ásökunum frá fjarhægriaðilum sem neita að samþykkja úrslit kosninganna.“ Sjá einnig: Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Þeir biðja stjórnarandstöðuna einnig um að vinna með þeim með því markmiði að koma Netanjahú frá völdum. „Án okkar, getið þið ekki unnið. Með okkur, getum við byggt nýja framtíð.“ Sameinaði listinn styður stofnun fyrirhugaðs ríkis Palestínumanna og hafa margir ísraelskir stjórnmálaleiðtogar ekki viljað vinna með flokknum.
Ísrael Kosningar í Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira