Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Eiður Þór Árnason skrifar 31. október 2026 12:25 Lögregluþjónar við stjórnlagadómstólinn í dag. AP//Rafal Niedzielski Óeirðalögregla er komin að stjórnlagadómstól Póllands vegna harðnandi deilu milli ríkisstjórnarinnar og æðstu dómara dómstólsins. Reynir lögregla að koma í veg fyrir að mótmælendur komist inn í dómshúsið.
Í deilunni takast á ríkisstjórn Donalds Tusk forsætisráðherra og fulltrúar hægriflokksins Laga og réttlætis sem fór áður með stjórn landsins. BBC greinir frá þessu. Lögreglan skarst í leikinn eftir að Waldemar Żurek dómsmálaráðherra greindi frá því að hann hefði farið fram á að Bogdan Święczkowski, forseti dómstólsins, og Bartłomiej Sochański, varaforseti hans, yrðu sviptir friðhelgi gegn saksókn svo hægt væri að ákæra þá fyrir refsiverð brot. Tusk hefur heitið því að afnema pólitísk ítök í dómskerfinu sem séu afleiðing stefnu fyrri ríkisstjórnar. Hann varði aðgerðirnar í gær á meðan stuðningsmenn Laga og réttlætis söfnuðust saman fyrir utan húsnæði dómstólsins í höfuðborginni Varsjá til að mótmæla. Saka stjórnvöld um valdarán Í samfélagsmiðlafærslu stjórnlagadómstólsins segir að dómararnir tveir sem ríkisstjórnin vilji sækja til saka séu löglega skipaðir æðstu dómarar dómstólsins. „Allir sem taka þátt í þessum aðgerðum eru að fremja glæpsamlegt valdarán,“ segir jafnframt í færslunni. Tusk forsætisráðherra segir það skyldu stjórnvalda að „endurreisa réttarríkið“. „Þetta er erfitt eftir margra ára lögleysu Laga og réttlætis og stundum sársaukafullt ferli sem krefst afdráttarlausra aðgerða. Það er engin önnur leið,“ skrifar hann í færslu á samfélagsmiðlum. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands.EPA Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðað dómstólinn hlutdrægan Þegar íhaldsstjórn Laga og réttlætis tók við völdum árið 2015 skipaði hún fljótlega dómara til að ná meirihluta í stjórnlagadómstólnum sem hefur vald til að úrskurða um lögmæti lagasetningar. Mannréttindadómstóll Evrópu og Dómstóll Evrópusambandsins úrskurðuðu síðar að stjórnvöld hefðu kjörið þrjá dómara með ólögmætum hætti þar sem fyrra þing hafi verið búið að skipa í stöður þeirra. Þá úrskurðuðu evrópsku dómstólarnir að stjórnlagadómstóll Póllands gæti ekki lengur talist „sjálfstæður og óhlutdrægur dómstóll“. Ríkisstjórn Tusks vísaði til þessa þegar hún hætti að birta úrskurði dómstólsins. Fram kemur í frétt BBC að Tusk hafi ekki tekist að afnema breytingar frá valdatíma Laga og réttlætis, meðal annars vegna þess að Karol Nawrocki forseti og forveri hans Andrzej Duda beittu neitunarvaldi forseta til að stöðva framgang mála sitjandi ríkisstjórnar. Báðir forsetar njóta stuðnings fyrrum stjórnarflokksins Laga og réttlætis. Forsetinn sneri við í loftinu Nawrocki hefur neitað að sverja fimm dómara í embætti sem þingið hefur kjörið í stjórnlagadómstólinn frá því í mars. Hefur hann byggt á því að meintir annmarkar hafi verið á valferlinu. Feneyjarnefndin, sem er ráðgefandi stofnun Evrópuráðsins í stjórnskipunarmálum, sagði fyrr í þessum mánuði að Nawrocki forseti ætti að sverja dómarana í embætti svo þeir gætu tekið sæti í stjórnlagadómstólnum. Żurek dómsmálaráðherra sagði að dómarinn Święczkowski og varaforseti hans ættu að sæta ákæru fyrir að leyfa dómurunum ekki að dæma í málum. Nawrocki forseti er kominn inn í byggingu stjórnlagadómstólsins, að sögn skrifstofustjóra hans. Nawrocki hætti við ferð til Senegal á meðan flugvél hans var í loftinu til að geta verið viðstaddur átökin í Varsjá. Hann var á leið á Sumarólympíuleika ungmenna í Dakar, að því er fram kemur í frétt BBC. Fréttin hefur verið uppfærð.
Pólland Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira