Fleiri fréttir

Steypustöðin tekin úr formlegu söluferli

Steypustöðin ehf. hefur verið tekin úr formlegu söluferli en það var Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, sem sá um söluferlið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðengi.

Óljóst hvort laun seðlabankastjóra hafi lækkað

Varaformaður bankaráðs Seðlabankans segir ekki rétt að bankaráð hafi ákveðið að hækka laun seðlabankastjóra umfram úrskurð kjararáðs. Hann getur þó ekki tekið af tvímæli um að úrskurður kjararáðs sé kominn til framkvæmda.

Greining: Spáir 0,5 prósentustiga stýrivaxtalækkun

Greining Íslandsbanka hefur gefið út nýja spá fyrir stýrivexti. Greiningin reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti bankans um 0,50 eða 0,75 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 23. júní næstkomandi.

Íbúðalánasjóður heldur vöxtum sínum óbreyttum

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðsins á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 8. júní 2010.

Óvarlegt að álykta að kreppunni sé lokið

Þrátt fyrir að lítilsháttar hagvöxtur hafi mælst hérlendis tvo ársfjórðunga í röð er óvarlegt að álykta að kreppunni sé lokið. Raunar eru vísbendingar um að hagvöxturinn verði aftur neikvæður á öðrum ársfjórðungi þessa árs.

Hagvöxtur mældist 0,6% milli ársfjórðunga

Landsframleiðsla, og þar með hagvöxtur, er talin hafa aukist um 0,6% að raungildi frá fjórða ársfjórðungi 2009 til fyrsta ársfjórðungs 2010. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 1,3%.

Hópur fjárfesta kaupir ALP bílaleiguna

Samningar hafa tekist um að nýir eigendur eignist bílaleiguna ALP ehf. með yfirtöku skulda og kaupum á nýju hlutafé, en viðskiptin marka lokin á endurskipulagningu félagsins. Samningar eru gerðir með fyrirvara um endanlegt samþykki alþjóðlegu bílaleigufyrirtækjanna AVIS og Budget um tilfærslu á leyfi til nýrra eigenda.

Bankar fresta innheimtu á 3 milljarða fjárkröfu

Bankar sem eiga þriggja milljarða króna fjárkröfur á hendur eitthundrað og fjörutíu Húnvetningum og Strandamönnum vegna stofnfjárkaupa í sparisjóði héraðsins, hafa frestað því þar til síðar á árinu að hefja innheimtu.

Sala á áfengi dróst saman um 10%

Sala á áfengi dróst saman um 10% í lítrum talið á fyrstu fimm mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Ef salan í maí er hins vegar borin saman við sama mánuð í fyrra er samdrátturinn tæplega 17%.

Samþykkir kröfu fyrrverandi fjármálastjóra Straums

Krafa fyrrverandi fjármálastjóra Straums Burðaráss upp á 179.292 pund, 34 milljónir króna, var í Héraðsdómi Reykjavíkur samþykkt sem forgangskrafa í þrotabú bankans. Hann féll frá tveggja milljón evra kröfu.

Raungengi krónunnar hækkar sjö mánuði í röð

Raungengi íslensku krónunnar hækkaði sjötta mánuðinn í röð í maí síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Hækkunin að þessu sinni nam 3,8% frá fyrri mánuði en raungengið hefur ekki verið hærra síðan í mars á síðasta ári.

Reyndu að fela aðkomu Ólafs í Al-Thani málinu

Sjeikinn Mohammed Al-Thani frá Katar fékk 6,5 milljarða króna fyrir að lána nafn sitt í viðskiptum með 5% hlut í Kaupþingi rétt fyrir fall bankans, að því er fram kemur í DV í dag. Magnús Guðmundsson og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi stjórnendur bankans, eru sagðir hafa stýrt leikfléttunni. Þá hafi verið reynt að fela aðkomu Ólafs Ólafssonar.

Árnína Steinunn Kristjánsdóttir ráðin til SpKef

SpKef sparisjóður hefur ráðið Árnínu Steinunni Kristjánsdóttur í stöðu regluvarðar hjá sjóðnum. Árnína hefur sl. 6 ár starfað sem lögfræðingur NASDAQ OMX kauphallarinnar á Íslandi.

Laun hækkuðu um 1,0% milli ársfjórðunga

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,0% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,3% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 0,3%.

Hætta var talin á árekstrum

Fjármálafyrirtækið HF Verðbréf sá um eignaskipti á svokölluðum Avens-skuldabréfum þegar Seðlabankinn seldi þau í lokuðu útboði til 26 lífeyrissjóða á mánudag og fékk fjörutíu milljónir króna í þóknun. Öðrum fjármálafyrirtækjum var ekki boðið að borðinu, samkvæmt heimildum blaðsins.

Skattaafsláttur gagnast sprotafyrirtækjum lítið

Skattaafsláttur einstaklinga vegna kaupa á hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum skilar litlu. „Þetta kerfi er meingallað,“ segir Eggert Claessen, framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Frumtaks. Hann gagnrýndi afsláttinn harðlega í málstofu Kauphallarinnar í síðustu viku og sagði um of lágar upphæðir að ræða. Farsælla væri að veita afslátt vegna kaupa í sjóðum, sem fjárfesti í nokkrum fyrirtækjum.

Tillögur skoðaðar af alvöru

„Þessar tillögur eru allrar athygli verðar og á síðasta fundi nefndarinnar tók ég mig nú reyndar til og bað nefndarmenn að taka eintak af greininni til frekari úrvinnslu,“ sagði Maríanna Jónasdóttir sem er í forsvari fyrir starfshóp fjármálaráðuneytisins sem skoða á skattkerfisbreytingar. Hún vísar þar til tillagna sem Jón Steinsson, hagfræðingur við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum, birti í grein í Fréttablaðinu á miðvikudaginn.

Rétt ákvörðun tekin 2007

„Þetta eru mjög jákvæð teikn, svona tölur höfum við ekki séð frá 1970," segir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.

Þorskveiðin aukin um tíu þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskkvóti verði aukinn um 10.000 tonn á næsta fiskveiðiári þannig að leyfilegur hámarksafli verði 160.000 tonn.

Úrvalsvísitalan stóð í stað

Úrvalsvísitalan stóð í stað í dag og er 904,5 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá verðbréfavefnum Keldunni. Veltan nam 74 milljónum króna.

Kaupandi Skeljungs maki stjórnarformannsins

Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, sem tilkynnt var um að hafi keypt 49% hlut í Skeljungi í dag, er aðeins 33 ára gömul en áður var hún framkvæmdarstjóri fjárstýringu Straums-Burðaráss.

Áliðnaðurinn keyrir áfram jákvæð vöruskipti

Vöruskiptin við útlönd voru hagstæð um tæplega 16,8 milljarða kr. í maí síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti nú í morgun. Að baki þessu er mikil aukning á útflutningi iðnaðarvara og þá einkum áls.

Veiking evru bætir erlenda stöðu þjóðarbúsins

Nokkur breyting hefur orðið til batnaðar í erlendri stöðu þjóðarbúsins samkvæmt tölum Seðlabankans sem birtar voru í gær. Þannig var hrein staða við útlönd neikvæð um 5.895 milljarða kr. í lok fyrsta ársfjórðungs 2010 og batnar um 400 milljarða kr. frá því í lok síðastliðins árs, þá aðallega vegna veikingar evrunnar.

Iceland Express flýgur til New York

Iceland Express hefur hafið áætlunarflug til New York og þar með er í fyrsta skipti komin samkeppni á flugleiðinni milli Íslands og New York, segir í tilkynningu.

FME og sérstakur saksóknari berjast um starfsfólk

Forstjóri Fjármálaeftirlitisins, Gunnar Andersen, sagðist aðspurður í Morgunútvarpinu á RÚV í morgun, að hann væri ekki viss hvort það væru til nógu margir sérfræðingar til þess að ráða í þær tólf stöður sem FME auglýsir í þessa daganna.

Mánabergið komið úr 165 milljóna karfatúr

Mánaberg ÓF 42 er nú að koma til hafnar eftir úthafskarfaveiði á Reykjaneshrygg. Veiðiferðin sem hófst 13. maí gekk vel og heildarafli var ca. 650 tonn og aflaverðmæti ca. 165 milljónir króna. Skipið kom inn til millilöndunar 27. maí.

Heimilin juku kreditkortaveltu sína um 8,8%

Kreditkortavelta heimila jókst um 8,8% í janúar-apríl í ár miðað við janúar-apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6,0% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar-apríl 2010 um 7,4%.

Skel Investments keypti 49% hlutinn í Skeljungi

Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, hefur selt 49% hlut sinn í Skeljungi og tengdum félögum, en félögin voru sett í opið söluferli 24. nóvember sl. Kaupandi er Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, en hún er hluthafi í Skel Investments ehf. sem er eigandi 51% hlutar í félögunum. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Gistinóttum fækkar um 8% í apríl

Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 85.600 en voru 93.100 í sama mánuði árið 2009, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Skoða lögmæti fjármögnunar ríkisbankanna

Verið er að kanna hvort endurfjármögnun bankanna síðasta sumar stangist á við reglur Evrópska Efnahagssvæðisins (EES) og flokkist sem ólöglegur ríkisstuðningur. ESA (Eftirlitstofnun EFTA) er nú með málið til skoðunar.

Stefna að opnu og gagnsæju ferli

Arion banki leggur á það mat í hverju máli fyrir sig hvaða kostur sé heppilegastur þegar koma á í verð eignarhlutum í fyrirtækjum sem bankinn hefur þurft að taka yfir í þeim tilgangi að tryggja fullnustu eigna.

Verð hækkar þar til evra fer í 140 krónur

Neytendur þurfa að bíða þar til evran lækkar í um 140 krónur áður en verðlag kemst í jafnvægi. Samtök atvinnulífsins hafa reyndar talið að enn sé inni verðhækkun upp á um tíu prósent. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, formaður samtakanna.

Viðskiptajöfnuður óhagstæður um 27 milljarða

Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 27 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 1 milljarð afgang á sama tímabili árið áður. Þetta kemur fram í frétt frá Seðlabankanum.

Landsbankinn uppfyllir kröfur FME

Landsbankinn vill árétta vegna þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem kynnt var í gær, og sagt hefur verið frá í fréttum, að bankinn uppfyllir allar kröfur FME um stórar áhættuskuldbindingar, segir í yfirlýsingu.

GAMMA: Skuldabréfavísitalan hækkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 6,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 2,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi:

Sjá næstu 50 fréttir