Bolungarvíkurgöng björguðu Bjarnabúð
Margir spáðu því að Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins, myndi lognast út af með Bolungarvíkurgöngum þegar auðveldara varð fyrir Bolvíkinga að skreppa í búðir á Ísafirði. Reynsla kaupmannsins varð þveröfug; Ísfirðingar fóru að versla í Bolungarvík.