Erna Hrönn: Vestanvindar um Hvítasunnuna
Þorleifur Gaukur er algjör töframaður á munnhörpuna og hefur unnið með listamönnum eins og Kaleo, Laufeyju, Bríeti, KK, Mugison og svo mætti lengi telja. Hann býr í Nashville en er mættur til landsins í tónleikaferðalag ásamt kúrekanum Drake Sterling og söngskáldinu Lillian Leadbetter. Dásamlegt spjall með lifandi tónlistarflutningi Gauks og Sterling í lokin.