Herbert Guðmundsson - My Love

Vísir frumsýnir hér nýtt myndband með Herberti Guðmundssyni við lagið My Love. Lagið er af plötunni Tree of Life. Þetta er rómantískt lag enda er kappinn ástfanginn upp fyrir haus þessa dagana. Í myndbandinu fékk Herbert aðstoð frá Hilmari Erni Agnarssyni, fyrrum organista og kórstjóra Skálholtskirkju. Í því kemur kórinn Vox Populi fram undir stjórn Hilmars. Myndbandið vann kvikmyndagerðarmaðurinn Friðrik Grétarsson sem einnig vinnur að heimildarmynd um Herbert.

3153
04:01

Næst í spilun: Tónlist

Vinsælt í flokknum Tónlist